153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[13:32]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Þetta var mjög góð yfirferð yfir gallana í kerfinu sem við upplifum varðandi einmitt, eins og hv. þingmaður bendir á, launaþróunina sem er ekki fyrir alla en drífur áfram húsnæðisverðið. Þegar það verða svona hlutfallslegar breytingar á t.d. leigusamningum, sem eru vísitölubundnir, hefur það krónutöluáhrif á leiguverð sem bitnar miklu frekar á fólki sem er með lægri laun en hærri laun, nema við séum með þannig fyrirkomulag að við séum sífellt með krónutöluhækkanir til jafns í kjarasamningum sem hefur ekki verið reglan sem slík. Við erum með u.þ.b. 5% af öllu kerfinu sem félagslegar íbúðir, 5.000 félagslegar íbúðir í heild þannig að 1.000 félagslegar íbúðir bara í Reykjavík myndi hjálpa en Reykjavík er að leiða þetta með 3.000 félagslegar íbúðir nú þegar. Það þarf jafnræði úti um allt land hvað þetta varðar. Sum sveitarfélög eru með hærra hlutfall, íbúðirnar eru svo rosalega fáar að það eru ákveðin skekkjumörk í því, ein íbúð getur munað um 10% til eða frá, kannski ekki alveg. En við þurfum að horfa á þennan galla í kerfinu, hvernig launaþróunin er að drífa áfram húsnæðisverð, af því að þetta er svo rosalega markaðsbundið. Þá velti ég fyrir mér því sem hv. þingmaður var að benda á, með takmörkun á öðru húsnæði. Það gæti í vissum tilfellum búið til annan galla þar sem núna eru foreldrar oft að hjálpa til við að kaupa íbúð og eina leiðin stundum fyrir ungt fólk að komast inn á íbúðamarkaðinn er ef foreldrar þeirra fjárfesta í annarri íbúð með þeim. Það myndi þá skapa vandamál (Forseti hringir.) ef við værum að takmarka það. Það myndi leysa vandamálið á almennari hátt en þetta gæti verið smá galli.