153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[13:35]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Kristrún Frostadóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er auðvitað alveg rétt að höfuðborgin hefur verið leiðandi í þessum efnum. Það eru margar ástæður fyrir því, að einhverju leyti eru það pólitískar ástæður. En ég veit líka til þess að víða í þeim sveitarfélögum í kringum okkur sem hafa verið að stækka mjög hratt þá er bara frekar erfitt að standa undir allri þeirri innviðauppbyggingu sem nauðsynleg er án mikillar skuldsetningar. Staðreyndin er sú að staða sveitarfélaga er allt önnur og annars eðlis en staða ríkissjóðs þegar kemur að skuldsetningarsvigrúmi. Þau borga bæði hærri vexti, hafa takmarkaðri aðgang að fjármagni og ekki á eins hagstæðum kjörum og ríkið. Ég veit að víða hefur verið rætt um það hvort ríkið þurfi að koma inn og veita mögulega vaxtalaus eða niðurgreidd lán, gangast í einhvers konar ábyrgð fyrir grunninnviðum til að mynda, til þess að hægt sé að veita fleiri lóðir og fara í hraðari uppbyggingu vegna þess að sum þessara sveitarfélaga eru komin í fjárhagsvanda út af þessari hröðu uppbyggingu. Þetta er ekki fjárhagsvandi endilega til langs tíma vegna þess að hugmyndin er sú að byggja undir stærra samfélag og fá inn útsvarstekjur síðar en á fyrstu árunum og kannski fyrsta áratuginn þegar byggðin er að þenjast svona út er ofboðslegur upphafskostnaður. Þarna getur ríkið komið inn og aðstoðað við þessa uppbyggingu en það hefur ekki verið vilji til þess.

Mig langar líka til að nefna í samhengi við það sem hv. þingmaður talaði um að fólk lendi í vandræðum ef foreldrar geti ekki hjálpað við kaup á húsnæði. Þetta er skiljanleg framsetning en ég held að við þurfum líka að hafa í huga hvers konar kerfi við erum búin að stilla upp þar sem það hverra manna þú ert ákvarðar hvort þú komist inn á húsnæðismarkaðinn fyrir lífstíð eða ekki. Auðvitað þarf að taka tillit til þessa í svona úrræðum en ég nefni þetta bara sem dæmi um fjármagnsvæðingu á heimilum fólks í landinu.