153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[13:37]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Heyr, heyr, segi ég bara. Við erum í ákveðnum slag um það hverjum er um að kenna. Eins og hefur komið fram í greiningum dr. Ólafs Margeirssonar þá eru 15 prósentustig af 40 í verðlagshækkunum á undanförnum tíu árum vegna hækkunar á húsnæðisverði. Það er langsamlega stærsti liðurinn í verðbólgu á undanförnum tíu árum. Við höfum upplifað á undanförnum misserum svona pólitískar hártoganir um það hverjum það er að kenna, þ.e. skorturinn. Það er ítrekað verið að draga upp lóðaskort, sérstaklega í Reykjavík. Það er ákveðinn pólitískur slagur um það hver segir það hærra sem leiðir til þess hverjum er trúað. Það er magnað af því að þegar við skoðum þær greiningar sem t.d. Samband sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hefur verið að leggja fram þá eru núna 14.000 íbúðir í samþykktu deiliskipulagi. Það hafa verið birtar greinar í fjölmiðlum þar sem það er skoðað nánar hvort þetta standist skoðun, að vandinn sé lóðaskortur á undanförnum árum. Svo virðist ekki vera en samt fáum við þetta einhvern veginn í andlitið, þetta er lóðaskortur, lóðaskortur. Maður reynir að sýna þetta, það voru 8.000 íbúðir árið 2020, það eru 14.000 íbúðir núna tilbúnar í þessu deiliskipulagi, en þá fáum við í fjárlaganefnd fjármálaráðuneytið til okkar sem segir: Framkvæmdaraðilinn segir að þetta séu ekki byggingarhæfar lóðir. Þegar maður reynir að spyrja hvað það þýðir þá fær maður ekki nægilega skýr svör. Spurningin hérna er: Eru sveitarfélögin einhvern veginn að ljúga að okkur að samþykktar íbúðir eða lóðir í deiliskipulagi séu byggingarhæfar eða eru framkvæmdaraðilar að ljúga að okkur í rauninni og segja að þær séu ekki byggingarhæfar? Ættu stjórnvöld ekki að vera komin til botns í þessu á heiðarlegan hátt óháð einhverjum pólitískum hanaslag?