153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[13:42]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Kristrúnu Frostadóttur fyrir hennar góðu ræðu. Hún drap hér á mjög marga þætti sem ég get ekki sagt annað en að ég er henni hjartanlega sammála með og gleðilegt að þetta er eiginlega nánast allt í stefnumálum Flokks fólksins eins og vitað er og flokkurinn hreinlega stofnaður utan um þetta. Það sem mig langaði að tala um sérstaklega við hv. þingmann er hvernig ríkisstjórnin hefur gjarnan látið í veðri vaka að hún hafi verið að gera svona ofboðslega mikinn greiða t.d. með því að rýra tekjur ríkissjóðs um 23 milljarða með því að flækja skattkerfið enn frekar og koma með þetta þriðja skattþrep. Þau eru alltaf að tala um að það nýtist þeim tekjulægstu mest. Það nýtist mér. Það nýtist hv. þingmanni og það nýtist ráðherrum. Það nýtist öllu heila liðinu. Það er sko langt frá því að það sé að nýtast þeim tekjulægstu. Þeir fá bara að vera með, ef ég skil það rétt. Mig langar bara til að fá smásamtal um það við hv. þingmann. Annað er fjáröflun ríkissjóðs, hvernig við erum að afla tekna. Bankaskatturinn var, áður en hann var lækkaður af hæstv. fjármálaráðherra, ekki einu sinni 0,5%. Nú er alveg ljóst að bankarnir eru að fara að skila hagnaði, sennilega upp á um 100 milljarða bara á þessu ári. Ef við værum með bankaskattinn eins og hann var þá væri hann 9 milljarðar. Við erum að sjá 3 milljarða fara í bruðlið eins og að mublera upp Seðlabankann, 6 milljarða í umboðsóskir fjármálaráðherra um að fá að kaupa í Snobbhill niðri á Austurbakka. Við erum að sjá milljarða á milljarða ofan. Ég þakka hv. þingmanni hjartanlega fyrir að taka undir breytingartillögu Flokks fólksins um 360 milljónir til að reyna að aðstoða eldri borgara í sárri neyð núna fyrir jólin og 150 milljónir til að koma til móts við hjálparstofnanir og bið hv. þingmann að segja meira um þetta á eftir.