fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessu vegna þess að þær skattbreytingar sem voru innleiddar hér á síðasta kjörtímabili segja ekki alla söguna. Það greiða auðvitað allir lægstu skattprósentuna í þessu samhengi. Það er hægt að fara aðrar leiðir til að styðja við fólk sem er á lægri tekjum, til að mynda er hækkun á persónuafslætti auðvitað krónutöluhækkun þannig að hlutfallslega vigtar það þyngra fyrir fólk með lægri tekjur. Það væri líka hægt að hafa mismunandi persónuafslátt eftir stöðu fólks að því leytinu til. En það sem mér finnst líka skipta máli er að fólk átti sig á því að þegar farið er í svona skattkerfisbreytingar og það kemur ekki önnur skattheimta á móti, rétt eins og hv. þingmaður nefndi til að mynda varðandi bankaskatt — og ég geri ráð fyrir að hún taki undir með okkur í Samfylkingunni varðandi til að mynda auðlindarentugjöld og fjármagnstekjuskatt — þá hefur það þau áhrif að þjónustan rýrnar. Við vitum alveg hvaða hópar það eru sem nýta oft stærri hlutann af heilbrigðisþjónustunni og fá núna á móti sér þessi komugjöld og hærri kostnað. Það er hálfpartinn verið að selja fólki svolítið ranga hugmynd um hvað það fær út úr þessum nýju greiðslum. Mig langar líka að nefna í því samhengi varðandi skattkerfið að það sem skiptir mestu máli er auðvitað hvað þú færð nettó greitt út, ekki bara út frá sköttum heldur líka út frá bótagreiðslum í kerfinu. Það er alþekkt að það getur verið miklu betri leið að halda skattinum á hærri stað eða á fyrri stað og hafa þá frekar svigrúm til að fara í bótagreiðslur til þeirra sem búa við krappari kjör vegna þess að það skilar sér í því að viðkomandi aðili fær hærri ráðstöfunartekjur en það er ekki verið að greiða með jafn miklum hætti út úr kerfinu.