153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[13:46]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Enn erum við að róa með svipaðar árar í rauninni eins og þegar hv. þingmaður kemur inn á persónuafslátt. Flokkur fólksins hefur mælt með því að hætta að skattleggja fátækt, taka t.d. persónuafsláttinn af mér og hv. þingmanni sem höfum í rauninni ekki lífsnauðsynlega neitt með hann að gera og færa hann til, eins og við erum alltaf að tala um, forgangsraða fjármunum fyrir fólkið fyrst og sækja fjármunina þangað sem þeir eru fyrir og kannski gnótt af þeim og færa til þeirra sem þurfa á hjálpinni að halda. Ég tek hjartanlega undir með hv. þingmanni í sambandi við sjávarauðlindina okkar sem skilaði hreinum arði upp á 533 milljarða kr. frá árinu 2009, 533 milljarðar í hreinan hagnað af sjávarauðlindinni hjá sjávarútvegsfyrirtækjunum eftir að þau voru búin að greiða sína 85,9 milljarða kr. í auðlindagjöld. Ég velti því fyrir mér hvað hv. þingmaður sér fyrir sér að við eigum að taka í viðbót, hversu mikið, ef við stígum þarna inn. 533 milljarðar í hreinan hagnað. Takk fyrir, ég vildi gjarnan að ríkissjóður fengi helminginn. Við eigum auðlindina, takk. Þetta er kannski gassaleg hugmyndafræði, en mér þætti ekkert að því vegna þess að þeir hafa efni á því. En stór hluti samfélagsins, allt of stór, lepur dauðann úr skel og býr við rosalega bág kjör. Svo er líka annað. Hvernig líst hv. þingmanni á hugmynd og frumvarp Flokks fólksins um að leyfa öryrkjum að reyna fyrir sér á vinnumarkaði skerðingarlaust í ákveðinn tíma? Við leggjum til tvö ár til að fylgja í spor Svía og fleiri sem sýndu fram á það að eftir þetta reynslutímabil skiluðu 32% öryrkja sér t.d. ekki aftur inn á kerfið. (Forseti hringir.) Nú er hv. þingmaður vel menntuð á þessu sviði. Ég er alltaf að velta hlutum fyrir mér og reyna að nálgast þá á annan hátt og stíga út fyrir rammann. Erum við ekki alltaf að spara aurinn og fleygja krónunni, hv. þingmaður?