fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir áhugaverðar spurningar. Ég get tekið undir það og auðvitað tökum við í Samfylkingunni heils hugar undir þessar áherslur, að hætta að skattleggja fátækt. Við höfum hins vegar viljað fara þá leið að fara ekki endilega í skattalækkanir heldur frekar að styrkja samtrygginguna og að fólk fái meira út úr kerfinu, fái hærri ráðstöfunartekjur í formi hærri greiðslna sem það fær til baka. Við erum áfram með þessa mikilvægu tengingu sem felst í því að við séum öll að greiða inn í sameiginlega sjóði sem við getum verið stolt af en við fáum út úr þeim eftir þörf vegna þess að hún getur verið misjöfn eftir tíma lífsins, líka eftir þeirri stöðu sem fólk er í hverju sinni. Það er hægt að eiga verulega við ráðstöfunartekjur fólks með því að hafa góða skattstofna en vera á sama tíma með aukið svigrúm til greiðslna almannatrygginga, barnabóta, vaxtabóta og þess háttar. Þetta þarf auðvitað að fjármagna. Við höfum talað fyrir því í Samfylkingunni að við fáum meira út úr ákveðnum tekjustofnum. Þetta snýst ekki bara um réttlæti þó í grunninn sé skattlagning auðvitað réttlætismál. En þetta snýst líka um hagstjórn, sérstaklega á tímum verðbólgu, þegar vilji er fyrir því að fara í ákveðna endurdreifingu. Við þurfum, sérstaklega á tímum sem þessum, að velta fyrir okkur þeirri stöðu sem er komin í samfélaginu. Á sama tíma og ákveðnir hópar eru að líða verulega fyrir hærra vöruverð og húsnæðisverð eru ákveðnar útflutningsgreinar beinlínis að græða á þeim verðhækkunum sem við sjáum erlendis og því höfum við talað fyrir því að það minnsta sem hægt sé að gera, þó að ekki verði farið í kerfisbreytingar strax, sé að hækka veiðigjöld hér í landinu og þá erum við sér í lagi að horfa á stórútgerðirnar sem eru í allt annarri stöðu en minnstu fyrirtækin í landinu. Það vita allir að þar er meira svigrúm og þar er hægt að sækja þó nokkra milljarða.
Varðandi frumvarp Flokks fólksins um að vinna fyrir sér skerðingarlaust í einhvern tíma þá erum við auðvitað jákvæð fyrir því að skoðuð verði alls konar úrræði sem snúa að því að auka virkni fólks á vinnumarkaði. Ég tek því bara vel í þetta í fyrstu atrennu.