153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[13:51]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Stundum er umræðan um fjárlagagerð eins og hér sé um allt að því óbreytanlegar staðreyndir að ræða og málið snúist ekki um algera kjarnapólitík sem er í reynd tilfellið. Sjaldan sjáum við pólitík jafn skýra og einmitt þegar við erum að ræða fjárlög. Í þessu fjárlagafrumvarpi birtist mér mjög sterkt hvaða pólitík ríkisstjórnin stundar, hvaða pólitík ríkisstjórnin boðar. Allt speglast þetta mjög skýrt í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi.

Fjárlög næsta árs hafa meiri þýðingu en oft áður í ljósi þess að við erum að glíma við verðbólgu og mjög háa vexti. Það er þess vegna mikilvægt, eins og alltaf en aðstæður eru sérstaklega snúnar núna, að fjárlögin í ár, fjárlagafrumvarpið, endurspegli þau verkefni sem mikilvægast er að bregðast við og bregðast við strax. Það hefur mikla þýðingu fyrir fólkið í landinu að takast á við verðbólgu og hallarekstur ríkissjóðs. Það er mjög lítið rætt um hallarekstur ríkissjóðs í þessum sal. Mig langar fyrst að tala aðeins um verðbólguna því það er þannig að á hæstv. fjármálaráðherra hvílir þung ábyrgð um að ríkisfjármálin styðji við markmið Seðlabankans um að hemja verðbólgu. Verðbólgan og vaxtahækkanirnar núna þurfa kælingu, ég held að kæling sé orðið, til að bólgan gangi niður. Ef Seðlabankinn stendur einn að þessu verkefni þá halda vextirnir áfram að hækka. Það leggst mjög þungt á fjölskyldur, sérstaklega ungar barnafjölskyldur og atvinnulíf í landinu. En fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar gerir mjög lítið til að draga úr þessari verðbólgu og gerir lítið til að draga úr þenslu eins og t.d. má sjá af hörðum orðum seðlabankastjóra í gær sem upplifir greinilega að hann standi einn í þessari baráttu.

Viðreisn ætlar þess vegna að leggja fram breytingartillögur við þetta fjárlagafrumvarp og ég ætla að fara yfir helstu grunnþættina þar og fæ að gera betur grein fyrir einstaka útfærslum þegar við erum lengra komin í umræðuna. Eitt atriði þar eru tækifæri sem felast í hagræðingu í ríkisrekstri því að þessi hagræðing getur þjónað sem verkfæri í glímunni við verðbólguna. Viðreisn ætlar að leggja til að ríkisstjórninni verði falið að fara í markvissar hagræðingaraðgerðir til að greiða niður skuldir á komandi ári. Stefnt skuli að því að hagræða í ríkisrekstrinum fyrir 3 milljarða, m.a. með því að draga til baka fjölgun ráðuneyta og ráðherrastóla frá upphafi kjörtímabilsins en sá kostnaður var í milljörðum talinn. Strax á næsta ári verði skuldir ríkisins lækkaðar um 20 milljarða. Það er óverjandi að það eigi að reka ríkissjóð með halla, það er beinlínis markmið þessarar ríkisstjórnar, samfleytt í næstum áratug frá 2019 og út árið 2027. Hér þarf einfaldlega að sýna meira hugrekki.

Vaxtagjöld eru núna þriðji stærsti fjárlagaliður ríkisins. Vaxtakostnaður er ævintýralegur og veikir getu ríkisins til að fjárfesta í grunnþjónustu fyrir fólkið í landinu til frambúðar. Þess vegna skiptir svo miklu máli að koma í veg fyrir þessa blæðingu, að við komum í veg fyrir að svona stór hluti útgjalda ríkisins fari í vaxtagjöld því að við eigum að hafa metnað til að geta fjárfest kröftugt í þjónustu fyrir fólkið í landinu og það er einfaldlega minna svigrúm til þess þegar ríkið er alltaf rekið með halla og kostnaður af vaxtagjöldum er sá sem hann er.

Í því sambandi langar mig að nefna að hallinn sem er boðaður af hálfu ríkisstjórnarinnar núna er rúmlega 118 milljarðar. Það er einfaldlega ótækt þegar stjórnmálamenn og jafnvel heilir stjórnmálaflokkar tala eins og skuldir skipti ekki máli, þetta séu bara einhverjar tölur á blaði, því við sjáum það svart á hvítu núna, þegar við erum komin í 2. umr., að sá fjárlagaliður sem hækkar mest er ekki innspýting í heilbrigðismálin, ekki innspýting í húsnæðismálin og ekki viðbætur í samgöngur. Það eru vaxtagjöld. Þess vegna dugar ekki í fjárlagapólitík að neita að ræða halla eða skuldir því að þessar tölur hafa áhrif.

Viðreisn ætlar líka að leggja fram breytingartillögu um að veiðigjöld verði hækkuð, að þjóðin fái sanngjarna greiðslu fyrir nýtingu á sjávarauðlindinni. Hér erum við í sjálfu sér ekkert að leggja fram tillögur bara vegna þess að við erum að ræða fjárlög. Við höfum margsinnis og ítrekað lagt fram tillögur í þá átt að veiðigjöldin endurspegli markaðsvirði veiðiréttindanna. Það var methagnaður í sjávarútvegi í fyrra. Það eru jákvæð og gleðileg tíðindi og við eigum öll að vera stolt af sjávarútveginum. Þessi hagnaður var um 65 milljarðar kr. eftir skatta og gjöld. Markaðsvirði veiðiréttindanna núna er um 6 milljörðum hærra en veiðigjöldin standa í og því leggjum við til að þau verði hækkuð sem því nemur, um 6 milljarða.

Mig langar til að fjalla hér um breytingartillögur okkar varðandi fjárfestingu í heilbrigðiskerfinu. Einn stærsti vandi heilbrigðiskerfisins er mönnunarvandi og grundvöllur þess að þar getum við sótt fram er að bæta kjör og aðstöðu starfsfólks. Það þarf að vera eftirsóknarvert að vinna í heilbrigðiskerfinu. Staðan í dag sýnir aðra stöðu þegar um 25% hjúkrunarfræðinga eru hættir störfum fimm árum eftir að þeir hefja störf á Landspítalanum. Sú staða segir sitthvað um vinnuaðstæðurnar og álagið. Ísland þarf að hafa í huga að við getum verið að keppa við aðrar þjóðir um starfsfólk, einfaldlega vegna þess að heilbrigðisstarfsfólk er eftirsóttasti starfskraftur í heiminum í dag.

Við höfum lagt fram tillögu um að bæta kjör kvennastétta í heilbrigðiskerfinu; tillaga sem var samþykkt árið 2018 en hefur legið ofan í skúffu hjá ríkisstjórninni síðan. Við leggjum til að 6 milljörðum kr. verði varið aukalega til heilbrigðiskerfisins. Með þeim hætti er hægt að vinna á alvarlegri stöðu biðlista og draga úr álagi á starfsfólk. Við erum sem sagt að leggja fram tillögur um markvissa fjárfestingu í heilbrigðiskerfinu með sérstakan fókus á að bæta kjör kvennastétta í samræmi við fyrri áherslur og hugmyndir okkar þar um.

Við erum að leggja fram tillögur um aukinn stuðning við barnafjölskyldur í landinu. Unga fólkið og barnafjölskyldurnar finna einna mest og þyngst fyrir vöxtum sem hafa hækkað aftur og aftur, og auðvitað fyrir hækkandi verðlagi vegna verðbólgu. Þar erum við að horfa til þess hversu erfið staðan er hjá mörgum fyrstu kaupendum íbúða sem keyptu við þær aðstæður að vextir voru sögulega lágir og undir þeim söng fjármálaráðherra að við værum að renna inn í nýtt lágvaxtaskeið sem reyndist auðvitað ekki vera. Þetta fólk finnur nú mjög harkalega fyrir vaxtahækkunum og tillögur Viðreisnar eru þær að stuðningur við barnafjölskyldur í formi vaxtabóta, í formi húsnæðisbóta og í formi barnabóta verði 7,5 milljarðar. Þetta fólk verður fyrir þungu höggi vegna áhrifa af verðbólgu og gríðarlega háum vöxtum hérlendis sem gera það að verkum að það þarf að bregðast við. Þar vil ég leyfa mér að nefna að vextir á Íslandi hafa hækkað margfalt á við það sem við sjáum annars staðar í ríkjum sem þó eru að glíma við svipaða verðbólgu. Ástæðan er íslenska krónan. Það er ekki hægt að ætlast til þess að almenningur einn axli þann kostnað sem hlýst af gjaldmiðlinum. Þegar við erum að tala um unga fólkið þá held ég við ættum t.d. að hafa í huga að fyrir um ári, á svipuðum tíma og ríkisstjórnin var að endurnýja sín heiti, stóðu stýrivextir í 1,25% og verðbólgan í 4,4%. Þá fór af stað þessi söngur Sjálfstæðisflokksins um að við værum að renna inn í nýtt lágvaxtaskeið, unga fólkið fær þau skilaboð að þetta sé staðan og er á stjórnvöldum að skilja að þetta verði staðan til lengri tíma þó að það væri vitað að svo gæti allt aldrei verið í íslenskum veruleika, enda hefur það aldrei verið svo.

Mig langar líka að fjalla um breytingartillögu okkar við fyrirliggjandi fjárlagafrumvarp, að farið verði í það að nýta græna skatta og hvata til að takast á við loftslagsvandann. Ísland segist vera í fremstu röð í baráttunni gegn loftslagsbreytingum, talað er um okkur sem forysturíki á því sviði en staðan í dag er sú að það liggja fyrir markmið en aðgerðirnar skortir. Við erum ekki að horfa á tímasettar aðgerðir, við erum ekki að horfa á neitt sem gerir að verkum að við getum mælt árangur. Ekki eru fókuseraðar fjárfestingar í þágu þessara markmiða en öflugasta og skilvirkasta verkfærið sem stjórnvöld hafa til að ná árangri eru hagrænir hvatar á borð við kolefnisgjald sem leggst á alla losun. Við erum að leggja til að lagt verði kolefnisgjald á stóriðju sem hingað til hefur verið undanþegin slíkum gjöldum þrátt fyrir að vera ein stærsta uppspretta gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Sú aðgerð mun samkvæmt okkar tillögu auka tekjur ríkissjóðs um 13,5 milljarða. Þá leggjum við líka til að Íslandsbanki verði seldur að fullu á komandi ári og að aðferðin við söluna verði opin og gagnsæ, söluandvirðinu verði varið til að greiða niður skuldir. Við erum að tala fyrir þessum skrefum og leiðum sem fram koma í þessum breytingartillögum, með þeim gæti ríkisstjórnin strax dregið úr halla ríkissjóðs og lækkað svimandi há vaxtagjöld ríkisins. Með sanngjarnari gjaldtöku í sjávarútvegi, sem sterkt ákall hefur verið um af hálfu þjóðar í langan tíma, og með grænum sköttum verða til tekjur sem hafa þýðingu fyrir rekstur ríkissjóðs. Samhliða verði hægt að fara í kröftugan stuðning við heilbrigðiskerfið og stuðning við þær fjölskyldur og einstaklinga sem hafa tekið á sig þungt högg vegna vaxtahækkana undanfarið. Það á að vera markmið í fjárlagagerð og markmið ríkisfjármála að þeim sé beitt þannig að niðurstaðan verði samfélag sem við getum verið stolt af og að fjárlögin skili niðurstöðu sem er í þágu almannahagsmuna.

Hérna hef ég stiklað á stóru um þær tillögur okkar sem lúta að hagræðingu og niðurgreiðslu skulda. Ég hef rammað inn tekjuöflunina og þá útgjaldaaukningu sem við erum að leggja til en vil leggja áherslu á, af því að mér finnst stundum vanta upp á það, ekki síst af hálfu þingmanna meiri hlutans, að við ræðum stóru myndina. Auðvitað er auðvelt að detta ofan í það að horfa á hvert málefnasvið, horfa á útgjöldin og krónurnar en missa kannski sjónar á því hvert markmiðið er, hvert markmiðið er með því hvernig ríkisfjármálum er beitt og að hverju er stefnt; að við notum orð í fjárlagagerð eins og sanngirni og réttlæti. Þetta eru hugtök sem hefur verið kallað eftir, t.d. varðandi tekjuöflun í tengslum við sjávarútveg. Mér finnst ég merkja í þessu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, og nefndi það í minni fyrri ræðu, feimni við framtíðarsýn, feimni við að taka ákvarðanir og þar vil ég aftur nefna loftslagsmálin, feimni við hugmyndafræði og forystu og þar vil ég nefna heilbrigðismálin og löggæsluna þar sem eitthvert samtal á milli þriggja flokka leiðir einhvern veginn til þess að ekkert gerist og síðast en ekki síst óþarflega mikla þjónkun við sérhagsmuni. Þar er enga feimni að finna. Að við séum alltaf að ræða það í hvernig samfélagi við viljum búa, hvaða þjónustu við viljum sjá fyrir fólkið í landinu, að spurningarnar séu hvernig eigi að skipta kostnaðinum af þessari þjónustu, hvernig við viljum standa að tekjuöflun og síðan ættum við að spyrja okkur að því, þegar við erum að skoða kerfin, hvort þau séu að þjóna almannahagsmunum. Eru einhver kerfi þarna sem þjóna sérhagsmunum eða hagsmunum hinna fáu? Þorum við að taka á því?

Þetta eru sem sagt þær tillögur sem við erum að leggja fram í tengslum við atkvæðagreiðslu eftir 2. umr. fjárlaga og ég er algerlega sannfærð um að ef ríkisstjórnin myndi styðja okkur þar væri hún strax komin í þá stöðu að geta fókuserað á fjárlögin og þau skref sem þar er hægt að stíga og nálgast það að teikna upp mynd sem þjónar einfaldlega hagsmunum fólksins í landinu.