153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:08]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Þó að hv. þingmaður hafi í þetta skipti ekki vikið mikið að femínískum áherslum í stjórnmálum þá langar mig að vísa hér aðeins í umsögn frá Femínískum fjármálum við fjárlög vegna þess að þar kristallast einn áherslupunktur sem kemur fram hjá hv. þingmanni og Viðreisn í breytingartillögunni. Í umsögninni er bent á að ekki sjáist merki tekjuöflunar sem leiðtogar tveggja ríkisstjórnarflokka hafa talað fyrir, svo sem hvalrekaskatts, hækkunar veiðigjalds og hækkunar skatts á fjármagnstekjur, og þeim þykir nokkuð sérstakt að aðaltekjuöflunaraukningin sé samkvæmt frumvarpinu hækkun skatta á neyslu einstaklinga. Þetta er náttúrlega femínísk áhersla í sjálfu sér en líka almenn sanngirnis- og réttlætisspurning. Er eðlilegt að auka álögur á einstaklinga þegar ekki er einu sinni byrjað að reyna að auka þær á sérhagsmunaöflin? Í því samhengi þykir mér svo ósköp ánægjulegt að sjá þessa tillögu Viðreisnar um sérstakt kolefnisgjald á stóriðjuna. Slíkt gjald var lagt á eftir hrun, eingöngu til að bæta stöðu ríkissjóðs, en sérhagsmunaöflin náðu að víkja því til hliðar mjög fljótt. Auðvitað á að setja svona gjald á aftur með grænum áherslum. Það loðir allt of mikið við þær fáu, umfangslitlu og góðu grænu aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur ráðist í. Þær eru allt of mikið á aðra hlið efnahagslegra hvata sem er sú að ívilna fólki fyrir að gera hið góða. (Forseti hringir.) Við sjáum þetta t.d. í orkuskiptum í samgöngum þar sem milljörðum er blætt í rafbílavæðingu. (Forseti hringir.) Enn er ekki farið að skrúfa aðeins upp vörugjöldin á bensínbílunum til þess að þetta hætti að vera óhagkvæmasta loftslagsaðgerðin í aðgerðaáætlun ríkisstjórnar.