153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:10]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og spurninguna. Ég kannast við þá umsögn sem hann er að vísa til og finnst t.d. mjög ánægjulegt að sjá það af hálfu fjármálaráðuneytis að verið sé að rýna fjárlögin með kynjagleraugum, hvernig einstakar ákvarðanir en líka aðgerðaleysi — mér finnst það kannski vanta — birtist kynjunum á ólíkan hátt. Ég myndi reyndar vilja sjá okkur markvissari í þeim efnum. Með sama hætti myndi ég vilja sjá og hef talað fyrir því innan fjárlaganefndar og í þessum sal, að við værum að rýna fjárlögin með grænum augum, grænum gleraugum, grænum fókus eða hvernig sem maður vill orða það, af því að við sjáum aldrei neinn grænan þráð flæða í gegnum Stjórnarráðið allt. Það er voða erfitt að sjá hvernig fjárfestingar ríkisins, útgjöld og aðhald er fókuserað inn á þennan málaflokk. Það væri eitthvað sem ég myndi vilja sjá.

Varðandi spurninguna um skattapólitíkina þá er þetta líka svo mikið grundvallarelement í hugmyndafræði, hvernig og hvar við sköttum speglar auðvitað hugmyndafræði óskaplega vel. Ég er sammála því að mér fannst t.d. sérstakt að sjá þessar krónutöluhækkanir sem leggjast á venjulegar fjölskyldur, millitekjufólk, og eru auðvitað sérstaklega þungar fyrir lágtekjuhópana, á sama tíma og ekki er verið að hreyfa við mjög augljósum skattstofnum. Þess fyrir utan þá hefur verið á það bent — BHM hefur t.d. bent á þetta með hvað það sé einkennilegt að fara þessa leið með krónutöluhækkanir á einstaklinga — að þessar hækkanir eru til þess fallnar að ýta undir verðbólgu.