153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:13]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Líkt og hv. þingmanni þá þykir mér mjög gott að sjá hversu aukin áhersla er lögð á jafnréttismat fjárlaga og allra frumvarpa, þótt fyrr hefði verið. Hversu margir fjármálaráðherrar skyldu hafa unnið að því verkefni í sinni ráðherratíð? Við erum að tala um 10–15 ára innleiðingartíma. Femínísk fjármál benda hins vegar á í umsögn sinni að það sé ekki nóg að greina og varpa ljósi, það þarf líka að láta þá greiningu stýra aðgerðum á einhvern hátt. Það er bara alls ekki raunin og það sama sjáum við allt of oft með grænu gleraugun þá sjaldan þau eru sett upp. Þá hefur það kannski engin áhrif en þau eru bara eiginlega aldrei sett upp.

Það sem mig langaði að víkja að í mínu seinna andsvari er að hv. þingmaður sagði að núna væri dálítið krítískur punktur varðandi fjárlög, þau hafi kannski meiri þýðingu núna en oft áður og nefndi þar sérstaklega stöðuna varðandi verðbólgu og vexti og að koma þurfi böndum á það fyrir næsta ár. En þau hafa líka gríðarlega þýðingu fyrir baráttuna gegn loftslagsbreytingum af því að við erum á krítískum tímapunkti. Í rauninni, sökum metnaðarleysis ríkisstjórnarinnar, sjálfsblekkingarinnar og sjálfsupphafningarinnar sem verður til þess að metnaðarleysið verður enn meira hjá henni, þá erum við að horfa fram á að árin 2022 og 2023 verði væntanlega glötuð ár í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Það er alveg ofboðslegt ábyrgðaratriði þegar við erum komin svona nálægt uppgjörsárinu 2030. En til að geta stigið þau skref sem þarf að stíga núna þá þarf auðvitað bæði hvata og fjármuni til að grípa til aðgerða og þess vegna myndi náttúrlega muna um þá 13 milljarða sem hér er lagt til að taka í sérstakt gjald af stóriðjunni. (Forseti hringir.) Þetta er meira en árlegt framlag ríkisstjórnarinnar til loftslagsmála og það munar um minna.