153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:15]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir. Þetta með grænu skattana og grænu hvatana virkar auðvitað í báðar áttir því að ég held að það eigi bara einfaldlega að nálgast málið þannig að þau borga sem menga en síðan má líka beita hvötum til að ýta undir þróun sem við viljum sjá, þróun sem er jákvæð. En hv. þingmaður þekkir vel og betur en ég hver gagnrýni loftslagsráðs hefur verið á stjórnvöld því að það er alveg satt, og við sem nefndarmenn í umhverfis- og samgöngunefnd þekkjum alveg ágætlega að þegar við leitum svara hjá hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þá heyrum við markmiðin en eftir ár í setu heyrum við enn þá ekki neitt um hvernig, með hvaða aðferðum og hvenær þær eigi að henda og eiga sér stað. Hvar eru fjárfestingarnar, hver er fókusinn og af hverju eða af hverju ekki?

Ég er einlæglega sammála því að við séum að fara mjög illa með tíma okkar þar og að það sé mjög auðvelt að gera betur, einfaldlega með því að setja sér skýran fókus, plan, og fylgja því eftir. Mér finnst vera komið dálítið gott af því núna að ræða um markmiðin okkar. Við þekkjum hver þau eru. Nú þarf bara að vinna að því að hrinda þeim í framkvæmd. En þessi tillaga okkar er auðvitað liður í þeirri hugmyndafræði að með álagningu gjalda sé hægt að ýta undir ákveðna þróun, spegla ákveðna pólitík um það hvað stjórnvöld vilja sjá, afla tekna og í kjölfarið að nýta þá fjármuni í brýn verkefni og til að greiða niður skuldir.