153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:18]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Mig langaði að leita til hv. þingmanns og spánýs félaga í fjárlaganefnd. Ég hélt ræður hérna í gærnótt um vinnulag þingsins og nefndarinnar, ég býst ekki við að margir hafi heyrt þær ræður svo þetta verður kannski pínu endurtekið. Mér líður dálítið þannig í vinnu fjárlaganefndar, og hefur liðið þannig mjög lengi, að við séum að sinna bara ákveðnu formi, ákveðinni málamyndadagskrá frá því að við fáum frumvarp til fjárlaga í hendurnar og þangað til það er afgreitt í þingsal. Það birtist í því að við getum svona í minni hlutanum sagt: Hey, við viljum fá aðeins meiri upplýsingar um þetta, köllum ráðuneytið á fund. Upplýsingarnar sem þarf að draga upp úr ráðuneytinu eru yfirleitt rosalega ófullnægjandi, það þarf að toga þær út með töngum og maður fær yfirleitt ekki það sem maður biður um. Þá er bara sá fundur búinn, búið er að tékka í þetta box, við höldum áfram með næsta mál og þetta er svona ákveðin lest; við erum á færibandi sem bara flýgur áfram án þess að við getum haft mikið um það að segja.

Gott dæmi um það er t.d. þegar hv. þingmaður biður um lögfræðiálit vegna ÍL-sjóðs. Þá er allt í einu bara sagt hart nei. Það bendir manni einmitt á hvernig þetta færiband er. Þegar verið er að biðja um upplýsingar um hluti sem eru einstaklega óþægilegir og væri rosalega erfitt að svara og víkja sér hjá, þá sér maður í raun og veru hvernig ferlið er bara til málamynda og hvernig þingið í þessu tilviki t.d. ætti að sjálfsögðu að grípa það frumkvæði sem hv. þingmaður gerði, en sagði nei. Mig langaði að fá svona upplifun hv. þingmanns af vinnulaginu í fjárlaganefnd, sem glænýr fjárlaganefndarmeðlimur.