153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:20]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa spurningu. Ég játa það að mér hefur fundist vinnan í fjárlaganefnd mjög skemmtileg og hef haft fyrir henni mikinn metnað. Í aðra röndina má kannski segja að yfir okkur dembist auðvitað ógrynni af pappírum og gögnum en svo er kannski hin hliðin sú að erfitt er að framkalla ákveðin gögn. Minn skilningur er sá að það sé nú ekki alveg handahófskennt hvaða gögn er erfitt að framkalla og hver ekki. Ég er búin að biðja um það í allt haust að fá upplýsingar um framlög til niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu. Ég veit að svarleysi þar stafar ekki af því að ríkisstjórnin viti ekki hver krónutalan er. Þetta svar hefur ekki borist okkur allan tímann í haust en er að koma hérna einmitt á lokametrunum. Ég held að hv. þingmaður muni það hversu oft þetta hefur verið ítrekað eða þá upplýsingar um það hversu mörg heimili eru með lán á breytilegum vöxtum nú. Þessar tölur liggja fyrir en fást ekki fram. Ég hefði haldið að jafnvel þó að hér starfi meiri hluti og minni hluti, þá ættu meiri hlutinn og minni hlutinn að ganga hönd í hönd um að krefjast þess að Alþingi sé sýnd sú virðing að fá fram þær upplýsingar og þau gögn til að geta skilað bestu mögulegu fjárlögum. Það er nú þannig að þau sem sitja í meiri hluta munu einhvern tíma sitja í minni hluta og því fara hagsmunirnir saman að þessu leyti. En síðan er það auðvitað bara þannig að meiri hlutinn má ekki gleyma því að virðing Alþingis á að trompa hagsmuni manna af því að finnast sum samtöl erfiðari en önnur.