153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:22]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Annað mjög gott dæmi hjá hv. þingmanni er einmitt með þessa fyrirspurn varðandi niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu, þar sem þetta var nú einu sinni frumvarp sem Viðreisn lagði fram og mjög skiljanlegt að hv. þingmaður hafi viljað hafa þær upplýsingar inni í nefndaráliti eða í rauninni í ræðu sinni, þar sem hv. þingmaður er áheyrnarfulltrúi og einhverra hluta vegna þarf endilega að útiloka áheyrnarfulltrúa frá því að skila einhverju áliti, sem ég er mjög ósammála. Að sjálfsögðu ættu áheyrnarfulltrúar að fá að gera það líka. En þetta svar barst í rauninni ekki fyrr en eftir að umræða hófst í 2. umr., mjög nýlega alla vega. Því er þetta einhvern veginn svona dæmigert, alla vega fyrir mína upplifun síðan 2016 þegar ég fór í fjárlaganefnd. Mér finnst nauðsynlegt, svo maður átti sig á því hvort maður sé að verða samdauna einhverju eða eitthvað svoleiðis, að pota í aðra og segja: Bíddu, er ég orðinn samdauna einhverju hérna? Er ég bara í einhverju rugli eða líður öðrum svona, þetta snýst svolítið um að glöggt er gests augað. Er ekki í alvöru dálítið sturlað að hafa þetta svona? Þetta er alla vega bara mín upplifun og tilraun mín til að minna mig á hvernig þetta er, ekki bara ég að vera eitthvað fúll á móti. Við sjáum þetta líka bara í ítrekuðum fundarstjórnum hérna vegna skriflegra fyrirspurna til ráðherra. Það er mælanlegt hversu langan tíma eigi að taka að svara þessum fyrirspurnum, það eru 15 virkir dagar. Í nefndum er gert ráð fyrir sjö dögum, gert er ráð fyrir viku til að svara fyrirspurn til nefnda vegna einmitt þingmála. En nei, það tók allt haustið í tilviki þessarar fyrirspurnar frá hv. þingmanni.