fjárlög 2023.
Frú forseti. Af því að hv. þingmaður nefnir skriflegar fyrirspurnir og fundarstjórn, þá er stundum verið að tala um að stjórnarandstaðan beiti skriflegum fyrirspurnum um of. Ég sé það sem beina afleiðingu þess hversu lítinn kraft við höfum inni í nefndunum. Ég var t.d. bara í dag að senda frá mér tvær skriflegar fyrirspurnir til hæstv. fjármálaráðherra, báðar lúta þær að ÍL-sjóði. Önnur fyrirspurnin er um það með hvaða hætti fjármálaráðherra hafi í gegnum tíðina flaggað stöðu sjóðsins við þingið. Honum bar og ber lagaleg skylda til þess. Síðan eru þetta spurningar um mat hans á ýmsum þessum þáttum. Þetta eru spurningar sem ég hefði leitað svara við væri fjármálaráðherra t.d. kominn fyrir fund fjárlaganefndar en það er töluvert síðan ég óskaði eftir því að hann kæmi og ætti við okkur samtal þar. Það hefur ekki orðið, eflaust vegna anna en það hefur ekki orðið. Fundarstjórn felur í sér sömu afleiðingu. Svör um að forsætisráðherra sé ekki til svara um pólitíska afstöðu ríkisstjórnarinnar til áframhaldandi bankasölu er annað atriði. Þetta framleiðir fundarstjórn. Þegar meiri hlutinn velur að veikja kraft þingsins þá hefur það þau áhrif að andrúmsloftið verður það sem það er inni í þingsal. Í því samhengi erum við í hringrásarhagkerfi. Af því að meiri hlutinn talar mikið um virðingu þings hér í þingsal, þá á hann bara að taka þá hugmyndafræði alla leið og leyfa þinginu að starfa eins og því er ætlað sem er af hálfu stjórnarandstöðunnar að veita meiri hlutanum rækilegt aðhald. Þungt aðhald er líka inni í því, ekki bara þægilegar spurningar. Þegar þau leyfa okkur það ekki þá birtist það hér inni í þingsal.