fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Ég er stundum spurður að því hver sé skemmtilegasti þingmaðurinn og þá svara ég: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir. Hún er bara æðisleg manneskja og yndislegur þingmaður og gríðarlega gaman að vinna með henni í fjárlaganefnd. Ég þakka fyrir. (Gripið fram í.) Eins sárt og það er að missa hv. þm. Guðbrand Einarsson úr fjárlaganefnd þá kom ekki síðri fjárlaganefndarmaður í staðinn frá Viðreisn.
Við í Pírötum erum með breytingartillögu vegna kirkjujarðasamkomulagsins. Ég átta mig á því að þetta er nýtt kjörtímabil. Það var sem sagt á síðasta kjörtímabili sem ég var með ansi margar fyrirspurnir og spurningar í fjárlaganefnd um einmitt kirkjujarðasamkomulagið til að við gætum áttað okkur á umfangi þess, tilurð, tilgangi og ýmislegu svoleiðis. Það var á síðasta kjörtímabili. Nú er komið nýtt kjörtímabil, nýir þingmenn og ýmislegt svoleiðis og ég held að það sé nauðsynlegt að útskýra aðeins betur, eins og fyrir nýjum þingmönnum, um hvað þetta mál snýst. Við erum að tala um 4 milljarða á ári. Um það snýst þessi umræða í fjárlögum og ástæða þess að við erum að leggja fram þá breytingartillögu við fjárlög að leggja þetta kirkjujarðasamkomulag niður birtist í minnisblaði sem ég sendi eða sem undirnefnd fjárlaganefndar gerði á síðasta kjörtímabili. Í þeirri undirnefnd voru ég, hv. þm. Haraldur Benediktsson og hv. þm. Birgir Þórarinsson. Við skiluðum þessu minnisblaði fjárlaganefndar vegna viðbótarsamnings íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar. Það var sem sagt gert viðbótarsamkomulag ofan á kirkjujarðasamkomulagið til þess að útfæra eitthvað, hætta að gera presta að ríkisstarfsmönnum og ýmislegt svoleiðis. Viðbótarsamninginn er hægt að finna á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í inngangi samningsins er forsaga málsins rakin, hvernig kirkjujarðasamkomulagið svokallaða frá árinu 1997 var fullnaðaruppgjör þeirra verðmæta sem ríkissjóður tók við árið 1907, 90 árum áður. Þetta er rosalega löng saga og rosalega margt sem liggur þarna á bak við sem við þurfum svolítið að skilja.
Í þessu minnisblaði sem ég er að fara aðeins yfir þá er farið yfir nokkur atriði varðandi samningana og álitaefni varðandi núverandi lagaumhverfi sem er töluvert breytt frá tímum upprunalega kirkjujarðasamkomulagsins. Þar ber helst að nefna 40. gr. laga um opinber fjármál og jafnframt verður að gæta að þremur greinum stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, þ.e. 40. gr. stjórnarskrárinnar um lagaheimild til að skuldbinda ríkið, 41. gr. um fjárheimildir og 62. gr. um hvernig ríkisvaldið skuli styðja og vernda þjóðkirkjuna. Í minnisblaðinu er farið yfir ýmis gögn málsins frá undanförnum áratugum, þetta er þannig mál, og dregið saman hvaða atriði fjárlaganefnd þarf að skoða nánar áður en væri hægt að ganga frá innleiðingu viðbótarsamningsins í fjárlög. Það er samt komið án þess að nokkuð hafi verið gert og við erum enn þá að borga 4 milljarða að eilífu, amen, í þetta kirkjujarðasamkomulag. Það er mjög skrýtið ef við skoðum atriði þessa samkomulags.
Helsta álitamálið er uppgjör þeirrar tilfærslu á eignum sem átti sér stað árið 1907 og voru gerðar upp í samkomulaginu frá 1997, um hvaða eignir er að ræða og hver endanlegur kostnaður þess uppgjörs er fyrir ríkið. Til viðbótar verður einnig að spyrja hvort framlag ríkisins er vegna 62. gr. stjórnarskrárinnar um að styrkja og vernda þjóðkirkjuna og miðað við þá samninga sem voru í gangi þá, þessu er skilað 2019, þá verður að gera ráð fyrir því að kirkjujarðasamkomulagið innihaldi hvort tveggja uppgjör vegna eignatilfærslunnar og samning um styrk vegna 62. gr. stjórnarskrárinnar. Þó að ekki sé fjallað um skiptingu þessara atriða í samkomulaginu þá verður að líta svo á að um hvort tveggja sé fjallað í þeirri skuldbindingu sem ríkið gerði á sama tíma og kirkjujarðasamkomulagið var gert. Ef það er ekki gert verður að útskýra hvernig ríkið á að standa við 62. gr. stjórnarskrárinnar að öðru leyti. Það bara vantar, sem er mjög bagalegt.
Í álitsgerð kirkjueignanefndar frá árunum 1984 og 1992 er ítarlega fjallað um þróun á jarðeignum kirkjunnar frá 1597–1984. Við erum að tala um árhundruð sem liggja að baki þessum blessaða samningi upp á 4 milljarða á ári. Í þessari kirkjujarðabók í rauninni er listi af jörðum sem eru taldar í eigu kirkjunnar á þeim tíma, sem sagt 1597, að þeim tíma sem skýrslunni er skilað, 1984. Það verður því að líta svo á að kirkjujarðasamkomulagið hafi snúist um afhendingu þeirra eigna sem koma fram í þeirri álitsgerð, andvirði þeirra jarða sem þar birtast. Það sem var gert var að fara yfir öll gögn sem voru tiltæk og svo var hægt að segja: Kirkjan átti þessar jarðir árið 1597. Síðan er rakin saga allra þeirra jarða, hvenær þær voru seldar, hvenær þeim var skipt o.s.frv. og hver staða þeirra var árið 1984. Í raun var sagt: Það er ekki hægt að gera neitt annað en að segja með sanni að kirkjan eigi þessar jarðir sem birtast í þessum lista árið 1984. Andvirði þeirra jarða sem birtast á þessum lista á þeim tíma, 1984 — reyndar líka 1992, en alla vega — er sundurliðað 1.072.774.127 kr., hvorki meira né minna. Af því var andvirði lands 239.598.100 kr., hlunnindi voru metin upp á 198.522.500 kr., hús voru metin upp á 476.450.528 kr. og ræktun — þetta er mjög góð skipting — upp á 158.203.000 kr. Við erum að tala um mat upp á einstakar krónur í andvirði, hvorki meira né minna. Það er því augljóst að um endanleg gæði var að ræða þegar kirkjujarðasamkomulagið var gert og einnig augljóst að heildaruppgjör á þeirri eignaafhendingu er mögulegt. Svo virðist hins vegar vera að enginn hafi haldið sérstaklega utan um slíkt uppgjör, þótt ætla mætti að bæði ráðuneyti og Ríkisendurskoðun hefðu átt að sinna því verkefni. Í svari við fyrirspurn minni á 149. þingi kemur fram að á tímabili kirkjujarðasamkomulagsins frá 1998–2018 hafi samtals verið greiddir rétt rúmir 42 milljarðar kr. vegna samkomulagsins á verðlagi ársins 2018. Vísitala neysluverðs hafði þá hækkað um 171% frá 1993 þar sem skýrslu kirkjueignanefndar var skilað í október 1992, sem þýðir að uppreiknað andvirði jarðanna frá 1984 til ársins 2018 er um 2,9 milljarðar á móti þessum 42 milljörðum.
Það kemur ekki fram á verðlagi hvers árs hvert fasteignamatið er í skýrslunni en gera má ráð fyrir að það sé á verðlagi útgáfuárs. Ef gert er ráð fyrir því verðlagi frá 1992 er uppfært verð einmitt rétt rúmir 3 milljarðar og þannig mætti færa rök fyrir því að eignatilfærslan sé þegar að fullu uppgreidd og eftir standi bara skuldbindingar ríkisins gagnvart 62. gr. stjórnarskrárinnar. Við erum búin að borga 42 milljarða fyrir eitthvað sem er í rauninni bara 3 milljarða kr. virði. Þá eigum við að spyrja: Á ríkið ekki eignirnar? Ef við myndum segja: Nei, við ætlum að hætta að borga þetta kirkjujarðasamkomulag, gæti þá kirkjan sagt: Heyrðu, þá viljum við fá jarðirnar aftur; þið eruð ekki búin að borga fyrir þær og eruð bara með þær að láni svo lengi sem þið borgið þetta kirkjujarðasamkomulag? Nei, það er ekki þannig og ekki hægt að rökstyðja það með nokkru móti. En þar sem ekki var gerð nákvæmari grein fyrir uppgjöri kirkjujarðanna sjálfra og skuldbindingum ríkisins gagnvart 62. gr. stjórnarskrárinnar verða slíkar vangaveltur hins vegar aldrei nægilega nákvæmar til að hægt sé að segja með fullri vissu hvort eignatilfærslan sé að fullu gerð upp eða ekki. Það býr til ákveðið vandamál fyrir viðbótarsamning ríkisins við þjóðkirkjuna af því að nú eru í gildi lög um opinber fjármál þar sem lagalegar kröfur á ríkið varðandi samningana eru mun strangari en áður.
Ég verð að fá að halda áfram með þetta. Ég er ekki alveg búinn og það eru nokkrar blaðsíður eftir sem ég tek seinna.