153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:37]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína góðu framsögu og taka undir sjónarmið hans að flestu leyti. Ég vil fá að spyrja hann í þessu samhengi sem við erum að ræða hér og þá auðvitað í drottins nafni, við erum að ræða kirkjunnar málefni, hvort hann sé mér sammála um að okkar ríku þjóð, þeirri sjöttu ríkustu í heimi samkvæmt OECD, sé enginn sómi að því að hafa hér þúsundir manna við fátæktarmörk sem ekki hafa til þess krafta eða burði að stunda atvinnu, hafandi lent í slysum eða orðið fyrir því að eldast; að við skulum skattleggja með þeim hætti þau framlög, sem þó eru bundin í lög, að meðalmaðurinn fær sirka 250.000 kr. á mánuði sem hrökkva fyrir tveggja herbergja íbúð í okurlandinu okkar góða? Þá er ekkert eftir fyrir dýru matarkörfunni, 333 kr. bensínlítranum eða öðrum nauðsynjum. Ég spyr því hv. þingmann hvort hann sé sammála okkur í Flokki fólksins um að við þurfum að bæta hér um betur. Við leggjum til framlög til stofnana sem útvega fólki mat fyrir jólin upp á 150 milljónir og óskum eftir því að þeir sem hafa farið yfir þröskuldinn frá því að vera öryrkjar 66 ára gamlir yfir í það að verða eldri borgarar 67 ára gamlir, fái sambærilega jólauppbót eins og nú hefur verið tilkynnt um. Ég spyr hv. þingmann að þessu.