fjárlög 2023.
Forseti. Ég fjallaði einmitt sérstaklega um húsnæðismálin í nefndaráliti mínu og áhrif þróunar í húsnæðismálum á fólk miðað við hvernig húsnæðisverð hefur þróast, hvernig fólk á að geta keypt íbúð og safna fyrir innborgun, hvernig leiguverð hefur þróast, hvernig neysluviðmið Stjórnarráðsins eru og hvernig tekjur skiptast í rauninni manna á milli samkvæmt skattgögnum sem birtast á tekjusagan.is. Miðað við þá greiningu kemur einfaldlega fram að næstum allir leigjendur sem eru á bilinu 25–30 ára og einstæðir karlmenn, ná ekki nægilega miklum ráðstöfunartekjum til að eiga fyrir fæði, klæði, húsnæði og safna fyrir íbúð. 10.000 einstæðar konur, sem er bara allur hópurinn, þ.e. engar konur sem eru einstæðar geta náð þessum ráðstöfunartekjum. Það eru ekki bara aldraðir og öryrkjar, langt frá því. Síðan eru 1.000 sem eru í sambúð án barna og 2.500 sem eru í sambúð með börn, sem er helmingur þess hóps sem er þarna undir, ekki með þessar ráðstöfunartekjur.
Ég hef lagt fram þingsályktunartillögu um að stjórnvöld geri aðeins betur í því að skilgreina hver lágmarksframfærsla er. Ef við værum með einhverjar svoleiðis skilgreiningar þá ættum við ekki að þurfa að spyrja spurninga eins og hvort verið sé að skattleggja lægstu tekjur eða ekki, því ráðstöfunartekjurnar fyrir lægstu laun ættu aldrei að vera undir lágmarksframfærslu. En okkur vantar það gólf til að geta talað um þetta í einhverju samhengi. En varðandi það sem hv. þingmaður nefnir: Já, við erum tvímælalaust í þessum vanda.