fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sitt andsvar við minni spurningu. Ég er eilítið eldri en hv. þingmaður og man þá undarlegu tíma þegar verðbólgan var ekki 8%, 9% eða 10% heldur 130%. Þá var eins og þetta gólf sem hér var nefnt, kannski voru 2,5 metrar til lofts, væri alltaf að hækka. Það varð erfiðara og erfiðara að standa uppréttur á eigin gólfi í því samhengi að peningarnir manns brunnu upp, ef maður átti eitthvað inn á reikningi og var svo vitlaus að leggja fyrir þá brann það upp og allt varð dýrara frá degi til dags. Þetta var ófremdarástand sem maður hefði vonað að hefði náð einhvers konar heilbrigðri lendingu 40 árum síðar. En við erum enn þá í þessu að lánið sem var 150.000 kr. á mánuði í fyrra er orðið 250.000 kr. í ár. Maður spyr sig: Hvers vegna í ósköpunum er svona vel menntuð og upplýst nútímaþjóð að láta þetta yfir sig ganga? Er þetta komið til af þrælslund sem gæti verið afleiðing af aldalangri þjónkun við erlenda kónga, norræna kónga? Eða erum við bara ekki nógu vakandi? Erum við í svefngöngu vanans að leyfa þessu að gerast frá ári til árs? Þó að margt gott megi segja um efnahagsmál og velgengni okkar í mörgum deildum og vel meinandi ráðherra og stjórnvöld, verðum við ekki bara að taka okkur tak og komast á lygnan sjó og í eðlilegt umhverfi, bæði fyrir hina meðalríku, ríku og ekki síst hina fátæku sem því miður eru allt of margir á Íslandi?