153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:44]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Ég held að einhver þrælslund við erlenda kónga sé einmitt ekki vandamálið. Ég held að það sé frekar að ákveðnir aðilar hérna á Íslandi vilji haga sér eins og þessir erlendu kóngar og vera þessir erlendu kóngar. Við sjáum það í rauninni birtast á hinum ýmsu sviðum á Íslandi, hvernig sumir haga sér með því að valta yfir allt og alla og skeyta ekki um lög og reglur. Þær eiga við aðra en þá sjálfa. Það er nefnilega eitthvað sem við hljótum að þurfa að gera sem samfélag að huga að því hvernig fátækt verður ekki. Það hlýtur að vera byrjunarpunktur okkar að passa upp á að allir séu a.m.k. í lágmarki. Ég hef oft talað um þegar verið er að nota einhver lágmarksviðmið, grunnframfærslu t.d. eða eitthvað svoleiðis, að þau séu ekki bara alveg skorin við nögl heldur að svigrúm sé fyrir eitthvert fjárhagslegt frelsi fyrir fólk þannig að ekki sé algjör nauðhyggjuhugsun þar á bak við heldur sé sérstaklega hugað að frelsi fólks til athafna þar fyrir ofan. Þegar við værum með alla a.m.k. þar, þá hefur fólk bæði tíma og svigrúm til að hreyfa sig eitthvað frá því lágmarki. Þá ætti annað í rauninni að skipta síður máli. Við erum t.d. oft að horfa á meðaltöl í launum og alls konar svoleiðis sem skiptir í alvöru engu máli. Það er svo rosalega rangt að tala alltaf um meðalráðstöfunartekjur o.s.frv. Við eigum alltaf að horfa á þá hópa sem hafa ekki nóg og spyrja: Af hverju hafa þeir hópar ekki nóg? Því að þegar enginn líður í rauninni skort þá skiptir í raun engu máli hvert meðaltalið er eða neitt svoleiðis.