fjárlög 2023.
Forseti. Fyrst aðeins um kirkjujarðasamkomulagið. Þetta er rosalega flókin og löng saga, frá 1500 og seint. Maður getur ekki einu sinni sagt 1700 og súrkál, þetta er 1500 og súrkál. Sagan er orðin svo löng í kringum þetta. Það er mjög erfitt að ná þessu heildstæðu frá upphafi til enda, sérstaklega af því að aðstæður hafa breyst. Lög um opinber fjármál kveða núna á um takmarkaðan samningstíma skuldbindingar, þar sem stjórnarskráin er skýr með það að ekki megi skuldbinda ríkið til einhvers í óendanlegan tíma. En gamla kirkjujarðasamkomulagið gerði það og hálfvegis hið nýja líka, eða það dugir í 15 ár en það er bara miðað við fimm ára samningstíma í lögum um opinber fjármál. Því brýtur nýja viðbótarsamkomulagið gegn lögum um opinber fjármál. Það eru svona smáatriði úti um allt sem er rosalega erfitt að ná heildstæðri sýn á en ég held að þetta minnisblað, sem ég er ekki alveg búinn að klára að fara yfir, útskýri í raun stöðuna í heild sinni og áskoranirnar.
Varðandi spurninguna um 400.000 kr. skatta- og skerðingarlaust þá veit ég ekki alveg hvort það sé hárnákvæm, góð tala eða eitthvað svoleiðis. Örugglega er hún á því reiki, því að ef við hefðum fylgt launaþróun með lífeyri almannatrygginga undanfarna tvo áratugi væri sú upphæð einhvers staðar þar um kring. Það segir okkur að 400.000 kr., hvort sem þær eru skatta- og skerðingarlausar, svo lengi sem maður endar með eitthvað í kringum 400.000 kr. í ráðstöfunartekjur eða hvað sem greiddur er skattur af o.s.frv., ættu að skila sér í svipuðum kaupmætti miðað við launaþróun annarra hópa og hefðu átt að gera það ef farið hefði verið eftir lögum um almannatryggingar.