fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Já, ég tek undir að ekki er alltaf slétt og fellt að finna einhverja eina tölu en við verðum náttúrlega að setja okkur einhver mörk. Við vorum áður með 350.000 kr. skatta- og skerðingarlaust. Ég veit hvað hv. þingmaður á við þegar við erum að tala um hvernig lögin hafa verið brotin hægri, vinstri. 69. gr. laga um almannatryggingar hefur verið þverbrotin á þessum þjóðfélagshópi þar sem í raun segir skýrt og skorinort, eins og hv. þingmaður veit, að það eigi að leiðrétta framfærslu almannatryggingaþega 1. janúar hvers árs með tilliti til þess, hvort heldur sem er verðmætara fyrir lífeyrisþegann, að fylgja launaþróun almennings í landinu eða vísitölu neysluverðs. Vanalega hefur sú leið verið farin að velja lakari kostinn fyrir einstaklinginn sem þarf á þessu fjármagni að halda og þannig hefur kjaragliðnunin haldið áfram linnulaust og sleitulaust.
Nú er alltaf verið að segja: Flokkur fólksins, hvar ætlið þið að fá peningana? Mig langar að spyrja hv. þingmann út í það hvernig honum lítist á þetta bruðl sem virðist vera svo auðvelt að taka úr okkar sameiginlegu sjóðum, 6 milljarðana í Snobbhill hérna niðri á Austurbakka, Landsbankahúsið, og 3 milljarðana í Svörtuloft og að mublera upp fína Seðlabankann? Voru það ekki 2 milljarðar sem voru settir í stólaskiptin vegna þess að það varð náttúrlega að búa til ný ráðuneyti svo þessir snillingar, hæstv. ríkisstjórn, gætu haldið völdum? Bankaskatturinn, sem var undir hálfu prósenti, væri 9 milljörðum hærri núna ef hann hefði ekki verið lækkaður og það stefnir í 100 milljarða kr. hagnað bankanna í ár. Spurningin er einfaldlega þessi: Er hæstv. ríkisstjórn á einhverjum tímapunkti að forgangsraða fjármunum fyrir fólkið í landinu fyrst?