fjárlög 2023.
Forseti. Já, það er einmitt mjög áhugaverð og upplýsandi spurning þegar verið er að biðja Flokk fólksins um að útskýra hvaðan peningarnir eigi að koma hvað varðar þetta frumvarp. Þegar allt kemur til alls þá er fólk sem er á lægstu framfærslu í alveg fullkomnu hringrásarkerfi, ef nota má það orð aftur. Það nær ekki að leggja neitt til hliðar. Er kannski í minnstu hringrás sem möguleg er. Öll framlög sem fara þar inn renna beint í efnahagskerfið í heild sinni og aftur til ríkisins. Það er nokkurs konar hringrás þarna á milli, ekki alveg en að hluta til. Það sem bætist síðan við er aukakostnaður sem yfirleitt er ekki reiknaður og hv. þm. Halldóra Mogensen hefur t.d. spurt með skýrslubeiðni: Hvað kostar fátækt? Það er kostnaður á móti og hægt er að segja að peningurinn ætti frekar að koma inn í það að losna við fátækt frekar en að borga fyrir að viðhalda henni. Þegar allt kemur til alls þá er þetta dálítið mikil efnahagsspurning. Það er ekkert mál að búa til þessar krónur á hverju ári en hvernig stillir maður efnahagskerfið að öðru leyti til að viðhalda jafnvægi í því? Það er í raun réttari spurning því að þegar allt kemur til alls er ríkið í rauninni bara eigandi króna og býr þær til í því skyni að vera einhvers konar milliliður eða ákveðin smurolía í viðskiptum, í staðinn fyrir að nota vöruskipti eða ýmislegt annað. Ríkið stjórnar verðgildi krónunnar að mjög miklu leyti. (Forseti hringir.) Þó að það sé sagt að það gerist á svolítið sjálfstæðan hátt í Seðlabankanum þá gerist það samt í rauninni ekki. Spurningin um það hvaðan peningarnir eigi að koma er enda (Forseti hringir.) flóknari en nákvæmlega bara það, en hún sýnir ákveðna naumhyggju og þröngt sjónarmið fólks á það (Forseti hringir.) hvernig gjaldmiðill sem slíkur virkar í heildina, hvernig fjármál ríkisins virka í stærra samhengi.
(Forseti (DME): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutímann.)