153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:56]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Frú forseti. Mig langar að byrja á því að segja að ég er alveg einstaklega þakklát fyrir það að geta talað um fjárlögin að degi til eins og beiðni okkar sneri að í gær, ég er bara einstaklega þakklát fyrir að vera hér inni í þingsal klukkan næstum þrjú að degi til.

Forseti. Ég ætla að fá að tala aðeins um stúdenta og þá sérstaklega háskólastúdenta. Mér líður eins og málefni stúdenta og málefni ungs fólks hafi setið á hakanum í allt of langan tíma. Enn og aftur gera fjárlögin ekki ráð fyrir bágri stöðu stúdenta. Það var vissulega skref í rétta átt þegar Menntasjóður námsmanna tók við af Lánasjóði íslenskra námsmanna. Frítekjumarkið var hækkað úr 980.000 kr., minnir mig, upp í 1.483.000 kr., alla vega fyrir árið 2022, það er samkvæmt úthlutunarreglum fyrir árið 2022. En ef við setjum þetta í samhengi við það að stúdentar vinni bara yfir sumarið þá eru 1.483.000 kr. þriggja mánaða laun ef stúdent er með bachelor-gráðu og er í mastersnámi og fær laun í samræmi við það. Segjum svo að stúdent sé ekki kominn með bachelor-gráðu, þá eru grunnlaunin aðeins lægri, þá dekkar þetta fjóra mánuði, en þá er maður strax búinn að skalla frítekjumarkið, forseti. Þannig að minn punktur hér er sá að þó að frítekjumarkið hafi verið hækkað, og ég fagna því mjög, þá er þetta einfaldlega ekki nóg. Við þurfum líka að leggja áherslu á grunnframfærslu stúdenta. Eins og staðan er núna samkvæmt reiknivél framfærslulána á menntasjóðsvefnum er grunnframfærsla stúdenta — þ.e. ef þú ert akkúrat á frítekjumarkinu, ef þú ert akkúrat búinn að þéna 1.483.000 kr. á árinu þá eru þetta 195.258 kr. Samkvæmt reiknivél LÍS, Landssambands íslenskra stúdenta, eru þetta 196.040 kr. Þessar 782 kr. muna öllu, forseti. Þetta er alveg hálft hamborgaratilboð. En þetta er náttúrlega bara bág staða.

Í umræðum um fjárlög hefur mikið verið rætt um verðbólguna og að matarkarfan hækki og hvað það er erfið staða fyrir ungt fólk að vera á leigumarkaði eins og staðan er núna. Ef við tökum stúdent, sem dæmi, sem er á almennum leigumarkaði, þá eru 195.258 kr. ekki nóg, forseti. Mér þykir mjög miður að segja það, en ef við tökum einhvern stúdent, sem dæmi, sem er á stúdentagörðunum — ég var á stúdentagörðunum þangað til í fyrra og leigan mín var komin upp í 146.000 kr. Þannig að segjum sem svo að ég hafi verið á stúdentagörðunum og væri einungis á námslánum þá ætti ég hvað, 50.000 kr. eftir til þess að framfleyta mér á í gegnum mánuðinn.

Eins og ég segi þá hafa málefni stúdenta setið á hakanum hjá stjórnvöldum allt of lengi. En það sem ég held að fólk sé ekki að átta sig á er að það að fjárfesta í stúdentum er að fjárfesta í framtíðinni. Við erum framtíðarafl á vinnumarkaði þannig að ég skil ekki hvað hvaðan þessi tregða kemur til þess að auðvelda stúdentum að klára námið sitt án þess að hafa fjárhagsáhyggjur, án þess að vera kvíðin yfir því hvernig þau eigi að borga leigu í næsta mánuði, án þess að þurfa að lifa á hrísgrjónum eða núðlum. Af því að nú er það bara normið, afsakið slettuna, forseti, að stúdentar leyfi sér að hafa það skítt út af því að þannig er bara lífið, þannig hefur þetta verið og þannig á þetta að vera þangað til stúdentar útskrifast og fá vinnu.

Þetta er eitthvað sem ég lagði mikla áherslu á þegar ég var sjálf í stúdentapólitík og sat í stúdentaráði Háskóla Íslands, þ.e. annars vegar að hækka frítekjumarkið enn þá meira og að hækka grunnframfærsluna, sem hefur ekki verið hækkuð, að mig minnir, síðan rétt eftir hrun, forseti. Þetta er bara ekki í takt við tíðarandann, ekki í takt við ástandið sem er í samfélaginu akkúrat núna, enda mikið fjallað um verðbólguna og hækkun leiguverðs á almennum leigumarkaði. Ég hefði verið til í að sjá aðeins meiri áherslu lagða á málefni ungs fólks og stúdenta yfir höfuð af því að hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra er náttúrlega bara nýútskrifuð sjálf úr háskóla. Ég hefði haldið að hún hefði lagt aðeins meiri áherslu á málefni stúdenta þar sem hún var stúdent fyrir fimm árum. Hvernig stendur á þessu? Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra var sjálfur í stúdentahreyfingunni, minnir mig, þannig að þetta er ekkert eitthvert nýtt málefni. Við erum ekki ókunnug þessum málaflokki. Mér þykir það miður að ekki sé sett nógu mikið púður í málefni stúdenta. Og svo eru auðvitað atvinnuleysisbætur fyrir stúdenta allt annað mál. Stúdentar sem hafa verið í námi á síðustu sex mánuðum eiga ekki rétt á því að fá atvinnuleysisbætur jafnvel þó að það séu fordæmi fyrir því að stúdentar hafi í rauninni átt rétt á atvinnuleysisbótum. En þetta er málefni sem yrði mikil bót fyrir samfélagið og myndi létta byrðinni af stúdentum rosalega mikið, fá þau til að leggja meiri áherslu á námið, þá sérstaklega fólk sem getur einfaldlega ekki unnið. Ég held að kjarninn í þessu öllu saman sé að stúdentar vilja vinna, en með þessu lága frítekjumarki sem þú skallar eftir eina sumarvinnu — eftir eina sumarvinnu — þá er hvatinn lítill sem enginn. Í fyrra var ég bara í sumarstarfi, ég vann ekki með skóla, ég tók námslán. Ég var bara í sumarstarfi, byrjaði í júní og hætti í byrjun september og ég var strax búin að skalla frítekjumarkið. Þetta er bara venjan, þetta er bara venjulegt, þykir hæstv. ráðherrum í ríkisstjórn. Ég var ekki einu sinni útskrifuð með BA-gráðu þá. Ég var ekki einu sinni með grunnháskólagráðuna mína þannig að ég var ekki á þeim launataxta sem ég var á nú í sumar á almennum vinnumarkaði. Þannig að ég vil bara setja þetta í samhengi við það að stúdentar eru mjög fljótir að skalla þetta frítekjumark. Eins mikil bót og það var þegar það var hækkað þá tel ég samt ekki vera gengið nógu langt í þessum efnum, því miður.

Annað sjónarmið í þessu er að ef stúdent er í hlutastarfi með skóla, segjum 30% eða 40% hlutastarfi með skóla, þá er hann strax búinn að skalla frítekjumarkið eftir eina önn og, segjum eftir hálft sumar í starfi. Þetta er náttúrlega rosalega sorglegt og það sem er enn sorglegra er að það virðist öllum vera skítsama, stúdentar eiga einhvern veginn að hafa það skítt af því að þannig hefur það alltaf verið og þannig mun það alltaf vera. Jafnvel þó að, eins og ég vék að hér fyrr í ræðu minni, þetta sé fjárfesting í framtíðinni. Stúdentar vilja vinna, stúdentar eru í námi til að geta farið út á vinnumarkaðinn, þótt ég vilji ekki smætta fólk, sem er í námi mögulega bara til að læra um lífið og læra fagið sem þau vilja læra, niður í tannhjól atvinnulífsins. En þetta er samt staðreynd, að við sem erum hér í námi og erum að vinna með höfum áhuga á því sem við erum að læra, við viljum vinna við þetta í framtíðinni. Og mér þykir það bara svo rosalega miður að þá sérstaklega Sjálfstæðisflokkurinn, sem hefur látið málefni ungs fólks sig varða mjög lengi, láti stúdenta sitja á hakanum þegar kemur að þessu máli. Ég veit að áherslan hjá Sjálfstæðisflokknum gæti vel verið sú að hækka frítekjumarkið frekar en að hækka grunnframfærslu, út af því að það skapar hvata fyrir stúdenta til að fara út á vinnumarkað og vinna. Það er gott og gilt, en frítekjumarkið er enn þá vissulega mjög lágt, forseti, og þetta er einfaldlega ekki nóg til að dekka það að stúdentar geti lifað af fram yfir skólaárið. En ég hefði viljað sjá heildarendurskoðun, sem mun eiga sér stað á næsta ári, sem gengur enn lengra í þessum efnum.