fjárlög 2023.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni Lenyu Rún Taha Karim innilega fyrir hennar skemmtilegu ræðu. Það er nú svo einkennilegt sem það er — hún kemur og talar hér um ráðherra málaflokksins sem er nýlega sjálf búin að útskrifast úr háskólanum, nýbúin að vera sjálf að glíma í þessum stúdentaheimi algjörlega frá A til Ö. Það merkilega við þetta er það að elsti þingmaður Alþingis í dag, elsti kjörni þingmaður þingsins, okkar góði samflokksfélagi, hv. þm. Tómas A. Tómasson, hefur einmitt komið með frumvarp þar sem hann leggur til að það séu bara yfir höfuð algerlega felldar niður allar skerðingar vegna launatekna stúdenta. Hann spyr: Eru stúdentar ekki að borga skatta og skyldur af sínum launum í ríkissjóð? Er þetta ekki bara hagnaður fyrir alla? Er þetta ekki til að koma frekar í veg fyrir mismunun vegna efnahags foreldra, t.d. að gefa stúdentum kost á því að vinna með námi eins og þau treysta sér til og geta, þó að í rauninni sé ekki til fyrirmyndar að gera þeim það þröngt í búi að þau neyðist til þess að vinna með skóla? En ef svo er þá er allt betra heldur en að þurfa að gefast upp og flosna upp vegna þess að þau hafa enga möguleika eða engin ráð á því að læra og halda áfram náminu sínu. Þannig að ég spyr bara hv. þingmann hvort þetta sé ekki bara algjörlega frábært frumvarp hjá hv. þingmanni okkar, honum Tómasi A. Tómassyni, og hvort hún muni ekki styðja það heils hugar og að allir vinni þegar við erum búin að ná því í gegn.