fjárlög 2023.
Frú forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir andsvarið. Ég ætla bara að byrja á því að segja að ef ég hefði verið inni á þingi áður en skjalinu var útbýtt hefði ég óskað eftir því að vera meðflutningsmaður á þessu frumvarpi, enda var ég sjálf í stúdentapólitík og málefni stúdenta, eins og ég vék að svo rosalega oft í ræðunni, hafa setið á hakanum svo ótrúlega lengi. Þannig að það gleður mig rosalega mikið að sjá að hv. þm. Tómas A. Tómasson, sem er líka elsti þingmaðurinn hér á Alþingi, láti málefni stúdenta sig varða, líka á þennan hátt sem við höfum verið að tala fyrir svo ótrúlega lengi í stúdentahreyfingunni allri, ekki bara í Háskóla Íslands heldur líka þvert á landið. Þannig að ég held að þetta sé bara rosalega óumdeilt meðal stúdenta og bara frá sjónarhorni stúdenta um að ekki bara lækka heldur fella niður frítekjumarkið, út af því að heildarendurskoðun á Menntasjóði námsmanna mun eiga sér stað árið 2023 og ég væri til í að sjá hæstv. ríkisstjórn ganga enn þá lengra í þessum efnum og það er með því að hækka grunnframfærsluna mögulega upp í lágmarkslaun og hreinlega fella niður frítekjumarkið. Þetta er metnaðarfullt og þetta er stórt skref en ég tel að það sé skref í rétta átt og ég tel að þetta myndi, eins og hv. þm. Inga Sæland segir, bara skila sér vel aftur inn í samfélagið af því að við erum líka að skapa hvata fyrir stúdenta og við eigum ekki að láta stúdenta velja milli þess að vera skuldug í framtíðinni og vinna mjög mikið með skóla. Þetta þarf ekki að vera annaðhvort/eða. Það er hægt að finna góðan milliveg.