153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:10]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og tek undir hvert einasta orð sem hún segir. Nú hefur hún reynslu af því að vera að vinna í stúdentaráði. Hún hefur reynslu af því og hefur haft eyrun á því hvernig unga fólkinu okkar líður og hvar ákallið er mest og hæst hjá þeim til þess að við sem hér erum og í rauninni ríkisvaldið, stjórnvöld, geti komið til móts við þau þannig að við séum að greiða götu framtíðar vegna þess að það er nú staðreyndin að unga fólkið okkar er í rauninni grasrót framtíðarinnar, það eru í rauninni þau sem eru að fara að taka utan um og erja jörðina á eftir okkur sem á undan höfum gengið.

Það er með hreinum ólíkindum hvernig stendur á öllum þessum skerðingahugmyndum alltaf hreint og hvernig stendur á því að fólk sem reynir að bjarga sér og reynir — eins og hv. þingmaður bendir á vilja fæstir safna skuldum ef þeir þurfa þess ekki. Í árferðinu t.d. í dag þá er eitthvað það ömurlegasta sem nokkur lendir í að safna skuldum í óðaverðbólgu og okurvöxtum. Ég veit að við getum algjörlega verið sammála um það. Og þá segi ég líka: Hefur hv. þingmaður orðið vör við í sínu starfi og félagsstarfi með stúdentum þessa mismunun sem ég tel vera á tækifærum ungs fólks til menntunar hreinlega vegna efnahags og hvernig það hefur þá komið fram, hvort hv. þingmaður geti sagt okkur t.d. frá því ef hún hefur reynslu af slíku, sem væntanlega er þá frekar dapurt að þurfa að upplifa og horfa upp á, að fólk hafi þurft að flosna upp úr náminu sínu eingöngu vegna bágs efnahags foreldra t.d.?