fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir góða spurningu og góða punkta sem var komið hér á framfæri. Til að byrja með vil ég bara benda á að kerfið hér í kringum stúdenta, lánasjóðskerfið, er ekki beint hvetjandi kerfi. Eins og ég tók fram þá er þetta með tilkomu Menntasjóðs námsmanna vissulega skref í rétta átt. Það er hvað, 40% niðurfelling á námslánum ef fólk klárar á réttum tíma, sem er samt að einhverju leyti smá mismunun, við vitum aldrei hvernig aðstæðum fólk er statt í eða hvort við erum að tala um foreldra, hvort við erum að tala um fólk með veikindi, hvort sem það eru andleg eða líkamleg, ég gæti haldið endalaust áfram.
Svo langar mig líka að benda á — við erum svo dugleg að bera okkur saman við Norðurlöndin, forseti, alltaf að tala um að við séum að standa okkur svo vel miðað við hitt og þetta land í þessum efnum. En ég vil bara benda á Danmörku. Þar fá stúdentar laun á meðan þau eru í skóla og það er skilgreiningin á hvetjandi kerfi.
En til þess að víkja að spurningu hv. þm. Ingu Sæland um hvort ég hafi orðið vör við það að ungu fólki í námi sé mismunað á grundvelli efnahags, þá já, auðvitað. Fólk sér þetta. Ég hef séð þetta á öllum stigum menntakerfisins. Ég hef séð þetta í grunnskóla. Ég hef séð þetta í menntaskóla. Ég hef séð þetta í háskóla. Fólk sem býr við bág kjör heima hjá sér er líklegra til að flosna upp úr námi, einmitt vegna þess að fólk fer út í það að vinna með námi, sem er auðvitað mjög gott og gilt, þannig er menningin okkar hér á Íslandi, að starfa með námi, en þegar þú ert kominn á þann stað að þú verður að starfa með námi til að geta borgað af hinu og þessu, þú býrð ekki foreldrahúsum eða býrð í foreldrahúsum og þarft að taka þátt í að reka heimilið fjárhagslega, þá skapast auðvitað rosalega mikil pressa, bæði andleg og líkamleg. Þú hefur ekki tíma fyrir námið. Þú hefur ekki andlegu heilsuna til að sinna báðu enda er fjárhagskvíði einn versti kvíði sem ég hef upplifað. Þannig að svona hlutir spila rosalega mikið inn í það hvort fólk flosni upp úr námi eða ekki og þetta er því miður algengari staða hér á Íslandi en við gerum okkur grein fyrir.