153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:15]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína sem var mjög áhugaverð um margt. Hún talaði mikið um menntun og vakti mig til umhugsunar um frumvarp okkar í Flokki fólksins, frumvarp til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna, launatekjur o.fl., sem hv. þm. Tómas A. Tómasson í Flokki fólksins er framsögumaður að. Þetta leiðir mig líka að stjórnarskránni, 2. mgr. 76. gr., með leyfi forseta: „Öllum skal tryggður í lögum réttur til almennrar menntunar og fræðslu við sitt hæfi.“ Í greinargerð með frumvarpi Flokks fólksins segir að það sé mikilvægur þáttur í menntun margra að læra af vinnu. Það sem er á bak við þetta frumvarp okkar er að það að stunda vinnu með námi sé mikilvægur þáttur af menntun. Ég hef alltaf litið svo á að á Íslandi sé mjög mikilvægur þáttur í menntun íslenskra menntamanna að menntamenn geti stundað hina ýmsu vinnu og verið í hinum ýmsu störfum sem eru ekki hluti af hinum formlega starfsferli eftir að námi lýkur. Með því að skerða verulega námslán vegna tekna er þá ekki verið að skerða réttinn til almennrar menntunar eins og fjallað er um í stjórnarskránni? Almenn menntun, eins og ég lít á það, er ekki bara skólagangan heldur líka hin fjölbreytilegu störf sem íslensk ungmenni og námsmenn geta farið í á námsferlinum. Þú ert í læknisfræði eða lögfræði en þú getur kannski farið á sjóinn eða farið í einhver störf hingað og þangað sem þú munt búa að alla tíð. Ég var t.d. að vinna í virkjunum þegar ég var í háskóla og fleiri góðum störfum.