153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:17]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir andsvarið og góða punkta sem hann kom hér á framfæri. Þetta gerðist líka í gær, hv. þm. Eyjólfur Ármannsson kom með einhverja stjórnarskrártúlkun sem ég hafði ekki hugsað út í áður og ég er bara sammála. Ég held að hv. þingmaður sé lögfræðingur, ég veit það ekki, mér heyrðist það. (Gripið fram í.) Já, nákvæmlega. Ég held að það væri alveg hægt að rökstyðja það þannig að með skerðingarhlutfallinu, þ.e. að það sé sett frítekjumark á tekjur stúdenta sem þau afla sér meðan á námi stendur, sé í rauninni verið að skerða rétt þeirra til þess að geta menntað sig. Eins og við vitum þá er ekkert frítt hér á landi og fleiri og fleiri þurfa að flytja í leiguhúsnæði, búa ekki í foreldrahúsum. Svo finnst mér líka rosalega mikilvægt að meta aðstæður hverju sinni. Við vitum aldrei hvernig aðstæður fólk býr við, hvort það sé að glíma við einhvers konar veikindi, hvort það eigi börn og þess háttar. Ég vék að því líka í seinna svari mínu við hv. þm. Ingu Sæland. En mér finnst eins og viðhorfið hér á Íslandi, mögulega á Norðurlöndunum líka, sé að menntun sé forréttindi, það er litið á það að geta menntað sig sem einhvers konar forréttindi sem ég eiginlega botna ekkert í af því að menntun er svo sjálfsagður hlutur. Menntun er fjárfesting í framtíð landsins til að byrja með. Eins og ég sagði í ræðu minni áðan þá er það að fjárfesta í stúdentum og gera þeim kleift að stunda nám (Forseti hringir.) án þess að hafa verulegar fjárhagslegar áhyggjur góð fjárfesting fyrir framtíðina.