fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið, hann kom með góðar spurningar. Til að byrja með, varðandi 40% niðurfellinguna, þá held ég að aðstæður séu alveg metnar, það sé litið til aðstæðna sem stúdent býr við og hefur þurft að glíma við yfir árið. En ég held að það sé tekið tillit að því leyti að ef stúdent klárar nám á fjórum árum í staðinn fyrir þremur þá gæti það enn þá talist sem svo að stúdent hafi klárað nám á réttum tíma. Ég held að það sé til undanþága fyrir því að lengja námið um eitt ár. Svo fer náttúrlega eftir úthlutunarreglum hvers árs til hvers má taka tillit og hvers ekki. Ég veiktist t.d. núna fyrr í vetur og ég gleymdi að sækja um námslán, gleymdi að skila inn umsókn fyrir námslán. Ég sendi skilaboð fimm dögum eftir að fresturinn rann út og ég fékk einfaldlega eftirfarandi svar: Það er ekkert í úthlutunarreglum sem gerir ráð fyrir þínum aðstæðum og því getum við ekki orðið við þeirri beiðni. Það sýnir bara hvers konar kerfi hefur verið lagt til grundvallar. Varðandi seinni spurninguna, mig minnir að hv. þingmaður hafi spurt um styrk, þá var það svo að þegar endurskoðunin á lánasjóðnum átti sér stað, þegar Lánasjóður íslenskra námsmanna breyttist í Menntasjóð námsmanna árið 2020, minnir mig, þá átti þessi 40% niðurfelling á námslánum sem er bundin við skilyrði, vissulega, að vera skref í áttina að kerfinu sem er til staðar í Danmörku. Þetta er enn þá mjög lítið skref, finnst mér, og mér finnst ekki gengið nógu langt í þessum efnum. Þess vegna er ég alltaf að tala um endurskoðunina sem mun eiga sér stað núna á lánasjóðskerfinu, þ.e. á lögum um Menntasjóð námsmanna í heild árið 2023, og ég vona svo innilega að þetta verði tekið enn þá lengra og það verði 80% niðurfelling (Forseti hringir.) eða hreinlega bara styrkjakerfi.