fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Eins og komið hefur fram erum við að ræða hér fjárlög 2023. Í upphafi langar mig að fara aftur í óundirbúnar fyrirspurnir í morgun þegar hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir spurði hæstv. fjármálaráðherra út í hinar óhugnanlegu hækkanir á leiguverði sem hafa dunið yfir. Þar var hún að tala um konu sem er öryrki og er á bótum almannatrygginga og hækkunin ein var 10.000–15.000 kr. meira en konan hefur í ráðstöfunartekjur nú þegar. Þegar núverandi leiga var greidd átti þessi kona einhverjar 60.000 kr. eftir til þess að lifa á. Svar hæstv. fjármálaráðherra var eiginlega, eins og vanalega, stórfurðulegt. Hann byrjaði á að hæla sér af því að ríkisstjórnin hefði stóraukið framlög til öryrkja og að ríkisstjórnin sé að setja heil 6% í þennan málaflokk um áramótin og sé búin að setja 3% þannig að þetta séu 9% í heild sinni og síðan fór hann að tala um hækkun leigubóta. En það var eitt sem hann nefndi aldrei og hann nefnir aldrei, það eru skerðingarnar, það eru keðjuverkandi skerðingarnar, hann lætur eins og þær séu ekki til. Hvers vegna gerir hann það? Jú, vegna þess að hann veit að ef hann setur 30.000 kr. inn í kerfið á mánuði fær hann 70–80% af því til baka, í gegnum vasann, beint inn í ríkissjóð aftur. Hann fær það kannski ekki strax en hann fær það á þeim furðulega degi sem ég hef kallað skelfingardaginn mikla þegar Tryggingastofnun sendir út og krefur veikt fólk, fatlað fólk og eldri borgara um endurgreiðslu á fjármunum sem ríkisstjórnin er búin að hæla sér af að hafa veitt þeim en skilar sér alls ekki í vasa fólksins.
Í þessu samhengi eru jólin að nálgast og þá eru glæpasögur vinsælar. En við erum hér að ræða um hálfgerða glæpasögu sem varðar keðjuverkandi skerðingar á skerðingar ofan, glæpasögu sem bitnar á almannatryggingaþegum, endalaus saga sem skrifast ár eftir ár, hefur skrifast áratugum saman og verður sennilega, ef þessi ríkisstjórn fær að vera áfram, eða eitthvað í hennar formi, ein af þessum endalausu sögum um skerðingar. Eins og ég hef áður bent á var ellilífeyrir ekki skattlagður í upphafi staðgreiðslu 1998, það var ekki króna í skatt á hann og fólk átti 20–30% upp í lífeyrissjóð. Þetta var kerfi sem átti að verja. Það átti að verja það með því að hækka samkvæmt launavísitölu, það átti að verja það með því að sjá til þess að persónuafslátturinn myndi hækka miðað við laun og launavísitölu og síðar meir kom fram í lögunum að miða eigi við launavísitölu í hækkun almannatrygginga en það hefur aldrei verið gert. Það er stórmerkilegt að við skulum vera með lög sem aldrei hefur verið farið eftir. Þess vegna er þessi gífurlega kjaragliðnun komin til, sem ég hef margoft bent á.
Fljótlega eftir að þetta kerfi var sett á, staðgreiðslan, var farið í ofbeldið og þá aðallega gagnvart lögþvinguðum lífeyrissjóði sem er eignaupptökuvarinn, þetta er eign fólksins. Glæpurinn er sá að fara að lögum, eini glæpurinn sem viðkomandi almannatryggingaþegar frömdu var að fara að lögum og borga í lífeyrissjóð. Fólk sem var að vinna og borgaði í lífeyrissjóð — þegar það var orðið aldrað og átti rétt á lífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins þá var því refsað og það var gert með alls konar brellum og keðjuverkandi skerðingum. Þótt síðar meir væri það hinn versti glæpur að refsa fólki með skerðingum á tekjum — ef við tækjum upp þessa kjaragliðnun á núvirði eru það yfir 100.000 kr. á mánuði eftir skatta. Það hefði verið auðvelt að sýna þessu aldraða fólki smávægð og leyfa því t.d. að fá jólabónus óskertan. Það eru allir að fá jólabónus en hann er líka tekjutengdur. Það er því stór hópur aldraðs fólks sem fær ekki krónu frá ríkisstjórninni í jólabónus vegna þess að það fær greitt úr lífeyrissjóði. Fyrst er því refsað fyrir það að borga í lífeyrissjóð með skerðingum en síðan er því refsað með lífeyrissjóðnum svo að það fái ekki jólabónus eða orlof. Svona margföld refsing ætti eiginlega ekki að vera fyrir hendi nema fólk hafi brotið gróflega af sér. Það er alveg þveröfugt. Fólk hefur farið að lögum og trúað því statt og stöðugt að það væri að safna fjármunum til elliáranna sem myndu nýtast þeim.
Við tókum líka eftir því að aldrað fólk fékk ekki krónu frá ríkisstjórninni í Covid. Það fékk ekki neitt skatta- og skerðingarlaust á Covid-tímabilinu og hefur ekki fengið. Og ég spyr: Hvers vegna í ósköpunum greiðum við því ekki 60.000 kr. skatta- og skerðingarlausar bætur, eingreiðslu eða jólabónus, hvað sem við viljum kalla það, eins og við erum búin að samþykkja og verður gert fyrir öryrkja? Það er eiginlega óskiljanlegt vegna þess að þarna er stór hópur undir sem við vitum að þarf virkilega á þessu að halda.
Það gengur ekki að hæla sér af því að nú ætli ríkisstjórnin t.d. að vera með hækkun á frítekjumarki upp í 200.000 kr. Við getum ekki sagt við öryrkja að ef hann fær 200.000 kr. á mánuði aukalega í vinnutekjur þá verði 67–80% af því tekið í skatta og skerðingar. Við myndum aldrei samþykkja svoleiðis meðferð á okkar launum. Og hvað þá að við séum að gera þá kröfu til veiks fólks sem er að reyna að bjarga sér og reyna að ná inn einhverjum peningum til að geta greitt fyrir ýmsan kostnað, t.d. mat, lyf, sjúkraþjálfun eða sérgreinalækna. Ef við tölum um sjúkraþjálfara, að komast að hjá sjúkraþjálfara er ekki sjálfsagt mál vegna langs biðlista en til hvers á fólk að vera að reyna að komast þangað þegar hver tími kostar orðið 2.000 kr.? Ef einhver þarf að fara tvisvar er kostnaðurinn kominn upp í 4.000 kr. Ef það er einu sinni í viku þá eru það 8.000 kr. á mánuði en ef það er tvisvar þá eru það 16.000 kr., sem er gífurlega há peningaupphæð fyrir fólk sem á ekki að borga krónu heldur á að njóta þessarar þjónustu án kostnaðar. Og ef það kemst ekki í sjúkraþjálfun, hvert á það þá að fara til að fá bót meina sinna? Ríkissjóður segir: Ekki benda á okkur í sambandi við fatlað fólk og öryrkja og annað, þetta er allt sveitarfélögunum að kenna. Þá segja sveitarfélögin: Ekki benda á okkur, þetta er allt ríkisstjórninni að kenna. Svo segja þau bara í kór — eins og við heyrðum hér fyrir svo stuttu: Þetta er allt fötluðu og veiku fólki að kenna vegna þess að ríkisstjórnin reiknaði dæmið vitlaust þegar málefni fatlaðs fólks fóru til sveitarfélaganna og því er þetta pottþétt fötluðu og veiku fólki að kenna.
Alþjóðadagur fatlaðra var haldinn um allan heim 3. desember síðastliðinn. Hann var fyrst haldinn af Sameinuðu þjóðunum 1992. Hvernig væri að drífa í því að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks? Stjórnarskráin, lög og reglur eru brotnar kerfisbundið á fötluðu og veiku fólki. Er ekki kominn tími til að ríkisstjórnin hætti því? Er það ekki löngu tímabært?
Virðulegur forseti. Í því samhengi má benda á að 20. nóvember síðastliðinn var mannréttindadagur barna og það eru tvö ár síðan sáttmáli um réttindi barnsins var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Vegna barnasáttmálans hafa orðið víðtækar breytingar á viðhorfum til barna, farið að líta á börn sem fullgilda einstaklinga með full réttindi sem beri að virða og vernda með öllum tiltækum ráðum og eftir öllum tiltækum leiðum. En á Íslandi eru 10.000 börn sem lifa í eða við fátækt, jafnvel sárafátækt. Það er okkur hér á Alþingi til háborinnar skammar og sérstaklega ríkisstjórninni og einnig það að láta það viðgangast svo áratugum skiptir. Við erum einnig með þúsundir barna á biðlistum eftir lífsnauðsynlegri þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Við látum þau grotna niður á biðlistum árum saman þannig að þau flosni upp úr skólakerfinu og fari í mörgum tilvikum á örorku og festist í fátækt og í félagslegu kerfi sveitarfélaganna. Ójöfnuður og fátækt eru að flytjast á milli kynslóða með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Að láta barn alast upp við sárafátækt er skýlaust brot á mannréttindum þess og getur skaðað það fyrir lífstíð. Stjórnvöldum hvers tíma ber að koma í veg fyrir fátækt barna og fjölskyldna þeirra. Fátækar barnafjölskyldur á Íslandi lenda í félagslegri einangrun og þar standa einstæðir foreldrar verst og þá einnig fjölskyldur með lágar tekjur. Fjölskyldur með fötluð börn eru með þeim verst settu og þá fylgir oft félagsleg einangrun örorkubótum og þær búa þar af leiðandi við mjög erfiðar félagslegar aðstæður. Börn í fátækt eru mun líklegri til að búa áfram í fátækt sem fullorðnir einstaklingar og fá á engan hátt sömu tækifæri og önnur börn.
Kostnaður við húsnæði er stærsti útgjaldaliður fjölskyldu á Íslandi og margir búa við óvenjulega þröngar og heilsuspillandi aðstæður og húsnæðisskort, eru jafnvel í ósamþykktu húsnæði. Þar er nýjasta dæmið að fólk er farið að búa í bílunum sínum, í hjólhýsinu sínu og reynir að lifa af þannig. Það merkilegasta við það er að ef einstaklingur, öryrki, fer úr íbúð og hefur þar fulla heimilisuppbót og flytur í hjólhýsi til að bjarga sér, til að minnka kostnaðinn, þá missir hann heimilisuppbótina af því að hann hefur ekki lögheimili. Það snýst allt um skerðingar í þessu kerfi, þessu ótrúlega kerfi sem á að vera hjálparkerfi en er búið að snúa algerlega á hvolf og er algjörlega orðið refsikerfi. Það er sorglegt til þess að vita og við þessu þarf að bregðast strax. Barnafjölskyldur og einstæðir öryrkjar á Íslandi eru sérstaklega viðkvæm fyrir fátækt og félagslegri einangrun og þá einnig fjölskyldur með fötluð börn eins og ég kom að.
En munum: Mannréttindi barna í fyrirrúmi og eitt barn í fátækt er einu barni of mikið. Eitt barn á bið eftir heilbrigðisþjónustu eða í fátækt er einu barni of mikið og það er brot á mannréttindum, barnasáttmálanum og stjórnarskránni og þar er um að ræða 76. gr. Við hljótum öll að vera sammála því að það er gjörsamlega óviðunandi að verið sé að brjóta stjórnarskrá, mannréttindi og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna á börnum á Íslandi.
Nú er ljóst að meiri hluti velferðarnefndar mun leggja fram frumvarp, og þar með ríkisstjórnarflokkarnir, og samþykkja 60.000 kr. eingreiðslu til öryrkja fyrir jólin, eða öllu heldur 60.300 kr. Meiri hluti velferðarnefndar mun leggja fram nánast samhljóða breytingartillögu og Flokkur fólksins sem við gerðum við fjáraukalögin, en því miður er greiðslan ekki fyrir verst setta aldraða fólkið í almannatryggingakerfinu sem þarf virkilega á þessum 60.300 kr. að halda skatta- og skerðingarlaust. Við erum að tala um 6.000 einstaklinga, það kostar bara 360 milljónir. Setjum það í samhengi við allt annað sem er í gangi í þjóðfélaginu. Áttum okkur á því hver þessi hópur er. Þessir öldruðu einstaklingar eru að stærstum hluta konur, mömmur, ömmur, langömmur og ekki síst langalangömmur sem voru ekki úti á vinnumarkaði og eiga lítið inni eða engan rétt á lífeyri frá lífeyrissjóðunum. Þetta er fólkið sem á að skilja eftir. Þetta er fólkið sem ríkisstjórnin telur einhvern veginn að þurfi ekki að hjálpa, hvorki nú í 10% verðbólgu né í Covid þegar allir fengu hjálp. Þá var akkúrat þessi hópur skilinn eftir. Það á aftur að skilja þennan hóp eftir. Hvers vegna? Hvað hefur þessi hópur gert viðkomandi ríkisstjórn? Við erum ekki bara að skatta fátækt, við erum að skatta sárafátækt. Hvernig væri nú einu sinni að hlusta með báðum eyrum á þetta fólk, verst setta fólkið okkar, og taka eldri borgarana inn í dæmið og hætta að halda því fram, eins og hæstv. fjármálaráðherra fullyrðir hér hvað eftir annað, að þeir hafi hækkað viðkomandi svo mikið að þeir hafi aldrei gert annað eins? Það getur vel verið að upphæðirnar hafi aldrei verið annað eins en á móti hafa skerðingarnar, keðjuverkandi skerðingar, skatturinn, aldrei verið annað eins og persónuafsláttur aldrei verið eins lágur miðað við launavísitölu og aðra uppreikninga sem hann hefur átt að fylgja.
Við erum að tala um 360 milljónir til 6.000 eldri borgara. Setjum það í samhengi við það sem var gert í Covid þar sem við vorum með hundruð milljarða undir og setjum það líka í samhengi við það að neita þessu fólki — þetta er fólkið sem hefur byggt landið okkar upp. Verst setta fólkið okkar bíður í biðröðum eftir mat, fær ekki matarbita þar sem allt klárast. Það verður að fara aftur í röð við næstu úthlutun og reyna þá að mæta aðeins fyrr, og jafnvel með börn sín, til að fá smámat í poka. En til að aðstoða þetta fólk þannig að það fái kannski hangikjöt og laufabrauð og eitthvað meira í pokann, fólk sem fær ekki neitt, getur ríkisstjórnin ekki séð af 150 milljónum. Ríkisstjórnin getur ekki séð af þeim peningum til að aðstoða þá sem eru að gefa mat þannig að þeir geti sett mat í poka fyrir alla sem á þurfa að halda. Auðvitað væri hið rétta í dæminu hreinlega að láta fólkið fá framfærslu sem dugir, 400.000 kr. skatta- og skerðingarlaust væri fyrsta skrefið. Frábært skref eins og Flokkur fólksins hefur lagt fram í frumvarpi.
Árið 2019 samþykkti Alþingi að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna hér á þingi og það átti að gerast 13. desember 2020. Nú er árið 2022 og það eru liðin tvö ár, því miður, eftir nokkra daga. Ef ríkisstjórnin dregur lappirnar við að lögfesta samninginn og með sama hraða sé ég ekki fram á að henni dugi næsti áratugurinn. Ríkisstjórnin dregur svo lappirnar við að lögfesta samninginn að ég þarf sennilega að lána henni ofurhækjurnar mínar til að hún geti gengið frá þessu máli fljótt og vel. En þetta varðar því miður verst setta hópinn okkar og þá draga menn alltaf lappirnar. Allar hindranir eru notaðar sem afsökun til að tefja málin og farin fjallabaksleið í fyrsta gír til að málið komist helst aldrei á dagskrá. Þetta gildir líka um lögfestingu á frjálsu bókuninni í málefnum fatlaðs fólks þar sem eru kæruleiðir fyrir fatlað fólk þegar brotið er á því og aðrar leiðir til að tryggja mannréttindi, stjórnarskrárbundin réttindi fólks. Við búum nú þegar í þjóðfélagi þar sem mannréttindi fatlaðs fólks eru langt á eftir. Þess vegna er nauðsynlegt að drífa þetta mál í gegn og koma því í þann farveg að það sé klárað. Þetta á að vera hægt og það eina sem ríkisstjórnin þarf á að halda er viljinn til að klára þetta mál. Þar á meðal þarf að taka á biðlistum, 8.000 manns á biðlista, fullorðnir á biðlista, ADHD-biðlistar, það kemur í veg fyrir að fólk geti menntað sig. Það er af nógu að taka, því miður. Ríkisstjórnin ætlar ekki að taka á þeim brýnu málum sem við þurfum á að halda.