153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:45]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar að fara í smáferð til fortíðar með hv. þingmanni. Við sátum saman í velferðarnefnd þegar NPA-lögin fóru í gegnum þingið og nú er verið að setja plástur á þau, verið að fresta því að bráðabirgðaákvæði um fjölda samninga komi til fullra framkvæmda um tvö ár vegna þess að það hefur orðið allt of lítið um efndir. Á það var bent í umfjöllun nefndarinnar á sínum tíma að mat ráðuneytisins á því að 172 samningar væru nóg væri fullbjartsýnt fyrir utan auðvitað það grunnprinsipp að ekki á að kvótasetja þessa þjónustu. Annaðhvort þarf fólk NPA eða ekki, það hvað ríkið segir um það hve mörg þurfi NPA í lögum stýrir því ekki. Nú er komin þessi reynsla á málið, það eru rétt rúmlega 90 samningar í gildi, hefðu átt að vera 172 samkvæmt gildandi lögum á þessu ári, verða allt að 145 á næsta ári ef bráðabirgðaákvæðið tekur gildi, sem er 15% minna en átti að vera á þessu ári. Mér finnst þetta mjög sorgleg mynd á einhverju sem við vorum full vonar yfir á sínum tíma.

Mig langar í fyrsta lagi að spyrja: Telur þingmaðurinn að mat ráðuneytisins á kostnaði sé trúverðugt eins og það er í frumvarpinu sem er til umfjöllunar í velferðarnefnd í dag eða er kostnaðurinn vanmetinn og þar með líklegt að fólk verði látið bíða eftir réttlætinu? Og hvernig líst þingmanninum á að við beitum okkur fyrir því að í staðinn fyrir að í bráðabirgðaákvæðinu standi að samningarnir eigi að vera allt að 145 standi að þeir eigi að vera a.m.k. 145 þannig að það sé ekki sá þáttur sem haldi aftur af réttlætinu?