fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir andsvarið. Og jú, þetta er eitt af þessum málum þar sem maður fær það á tilfinninguna að um verði að ræða endalausa sögu um brot á mannréttindum vegna þess hversu ómannúðlega hefur verið staðið að þessum málum. Þetta var gott mál og það voru allir ánægðir með þetta, það var frábært að verið væri að vinna í þessu máli. Því miður hefur þetta verið gífurlega heit kartafla, sjóðandi heit, sem ríkisstjórnin og sveitarfélögin hafa verið að henda á milli sín. Á milli lendir veikt fólk sem er að biðja um þjónustu sem var búið að samþykkja handa því og það er kallað kostnaður. Þetta er fólk, þetta er ekki kostnaður. Kostnaðurinn sem þau eru að tala um er til kominn vegna þess sem ég var að tala um í ræðu minni hér áðan, af því að það er vitlaust reiknað. Af því að sveitarfélögin og ríkið reiknuðu vitlaust þá standa báðir aðilar og benda hvor á annan að segja: Ekki benda á mig. Á milli eru þeir sem eiga rétt á þjónustunni og það er bent á þá og sagt: Þið eruð kostnaður. Eins og þetta sé þeim að kenna.
Ég skil ekki að við skulum enn vera að leika okkur að tölum, 145 eða 172 samningar, og það er sett inn ákveðin peningaupphæð. Nú allt í einu er talað um að samningur kosti kannski 30 milljónir en það var 2020 eða 2021, það á eftir að uppreikna það og það á ekki að gera það. Ef við samþykkjum þetta svona þýðir það að við þurfum að skera niður strax, það fá ekki eins margir þjónustu. Það er komin rétt tala á það hversu margir þurfa á þessari þjónustu að halda. Hættum að setja peninga inn í þetta, reiknum það nákvæmlega út hvað það kostar að taka þessa aðila inn og setjum þá peningana inn í kerfið.