fjárlög 2023.
Frú forseti. Það sem ég hef áhyggjur af, og mér heyrist hv. þingmaður vera mér sammála um, er að það sé verið að velta þessu á undan sér, að ekki sé nógu ríkur vilji til þess að láta þetta taka að fullu gildi, óskilyrt og bara til þeirra sem þurfa. Nú er verið að tefja fulla gildistöku um tvö ár. Hvað gerist síðan þegar kemur að þeim endapunkti og það verður kannski ekki búið að ná upp í 172 samningaþakið? Mætir ríkisstjórnin þá aftur með eitthvert tafafrumvarp? Ég er nefnilega svo hræddur um það. Að fenginni reynslu hef ég svo miklar áhyggjur af því að það sé ekki raunverulegur vilji til staðar — ég veit ekki hvar, innan ríkisstjórnarinnar, innan kerfisins, innan ráðuneytisins, einhvers staðar stendur þetta fast. Það sést á því að ekki er búið að úthluta fleiri samningum en raun ber vitni, rétt rúmlega 90 þegar það ætti að vera að komast yfir 170 á þessu ári. Það sést líka á því að það er fyrst núna sem mögulega á að fara að ná einhverri lendingu í kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga sem er stóra atriðið sem við ræddum fyrir fimm árum, það er fyrst núna sem við erum einhvern veginn að ná í land með það. Niðurstaðan — ég ætla að spá því að hún verði jafn augljós og hún var fyrir fimm árum, að í staðinn fyrir að ríkið borgi 25% þá borgi það 30%. Það hefur verið það sem sveitarfélögin hafa bent á frá upphafi og engin ástæða til annars en að það sé bara rétt reiknað. Síðan er það þessi skrýtna staða — við þekkjum þetta ekki í öðrum ívilnanakerfum, ef við köllum þetta bara það, eins og með niðurgreiðslu á rafbílum eða endurgreiðslu á kostnaði við kvikmyndagerð eða hvað annað sem það er, við erum með alls konar svona peningakerfi sem koma peningum til fólks sem er að gera ákveðna hluti. Nú er verið að koma peningum til fólks sem er að fá sér ákveðna þjónustu og tryggja hana. Þessi kerfi eru sjálfvirk eftir þörfum. Hvernig stendur á því að í þessu kerfi, í því einu af öllum þessum kerfum, er þörfin skorin niður ef fjárheimildin dugar ekki? Hvað segir það okkur líka um kerfið?