fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það hringdu allar viðvörunarbjöllur í kollinum á mér vegna þess að nú kemur frumvarpið inn og nú á það að vera í tvö ár. Þetta hefur alltaf verið eitt og eitt ár og alltaf endurnýjað og alltaf vandræðalegt. Núna á það að vera í tvö ár og ég hugsa með mér: Ókei, nú á það að vera þannig — það var það fyrsta sem mér datt í hug — að það á að bíða í tvö ár og svo koma aftur eftir tvö ár: Endurnýjum það aftur, nákvæmlega það sama, óbreytt, höldum áfram leiknum.
Málið er það að núna höfum við það á hreinu hver þörfin er, talan er komin. Það kom skýrt fram hjá þeim sem komu á vegum NPA-miðstöðvarinnar að það er búið að finna ákveðna tölu. Komum þeim samningum á, tökum svo tvö ár í að meta — þetta er það sem við verðum að klára núna, síðan geta fleiri komið. En það er enginn sem veit í sjálfu sér hversu margir fara inn í þetta kerfi. Það vilja ekki allir vera í þessu kerfi, þetta hentar ekki öllum. En þetta hentar ákveðnum hópum og við vitum töluna núna. Við þurfum bara að fjármagna það og ganga frá því í eitt skipti fyrir öll. Síðan getum við gefið okkur tíma til að kortleggja annað. Það er komin skýrsla og hún er alveg skýr, hvar kreppir að, að hverju við þurfum að einbeita okkur og hvernig á að leysa málið. Ég óttast það að við séum enn eina ferðina að fara í þá átt að vera með hálfkák í þessu og að við þurfum þar af leiðandi að koma að þessu aftur eftir tvö ár. Ég vona heitt og innilega að svo verði ekki. Ég ætla að gera allt sem ég get í velferðarnefnd til að reyna að breyta þessu. En eins og við vitum er eini möguleikinn til að breyta þessu sá að ríkisstjórnin sjálf breyti þessu og vilji gera það.