153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:55]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti.

Deyr fé, deyja frændur.

Deyr sjálfur ið sama.

En orðstír deyr aldregi

hveim er sér góðan getur.

Hér er, með leyfi forseta, vitnað til Hávamála og mikilvægis þess að halda heiðri sínum og orðstír í lagi. Um það snerust Íslendingasögurnar að ef heiður manna var skertur og á þá hallað þá var ljóst að í óefni stefndi. Hvers vegna er ég að fara út í þessa sálma? Meðal annars vegna þess að við eigum okkur stjórnarskrá þar sem skýrlega er kveðið á um réttindi þegnanna, skýrlega kveðið á um með hvaða hætti við skulum standa vörð um velferð hvert annars.

Í 76. gr. stjórnarskrárinnar segir:

„Öllum, sem þess þurfa, skal tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og sambærilegra atvika. […] Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.“

Hér er nokkurt svigrúm til túlkunar og margt hefur okkur tekist þokkalega í þessum efnum, þó alls ekki þannig að fullur sómi geti talist af. Það sem Flokkur fólksins hefur einsett sér, og höfðað til félaga sinna á þinginu í því sambandi, er að sammælast um að heiður okkar sem samfélags sé í húfi þegar við blasir að um tíund landsmanna býr alls ekki við mannsæmandi kjör og þar eru börnin ekki undanskilin og réttur þeirra til eðlilegs, heilbrigðs lífs og þátttöku í félagsstarfi, íþróttum, tónlistarnámi o.fl. sem talið er sjálfsagt í dag.

Ég er bjartsýnn á að okkur muni takast að færa þetta til betri vegar en þá þarf að hlusta og það þarf að ná um það samstöðu í þessum 63 manna hópi. Ég vona að svo megi verða því að við erum líka að tala um hversu lánsöm við höfum verið, afkomendur þeirra sem náðu að þreyja þorrann í gegnum aldirnar, undir stjórn misviturra og misgæfuríkra þjóðhöfðingja, fyrst Norðmanna og síðan Dana, hverra valdi við urðum undirorpin á miðri 13. öld. Þótt í kjölfarið gengi í garð nokkur kraftur í bókmenntum, sem við urðum þekkt af um víða veröld, er margt sem bendir til þess að við höfum í genunum fengið einhvers konar undirlægjuhátt og jafnvel örlítið af þrælslund sem hefur kannski ekki verið það veganesti sem þurfti til að öðlast að fullu sjálfstæði, jafnrétti og skapa heilbrigt samfélag þrátt fyrir að í mörgu hafi vel til tekist.

Nú ætla ég að fara í það sem við höfum undirgengist á alþjóðavettvangi. Við höfum skrifað undir sáttmála sem okkur ber að fylgja. Þá nefni ég hinn margnefnda Parísarsáttmála þar sem kveðið er á um tiltekt í umhverfismálum, útblæstri og almennri virðingu við loftslagsvá og umhverfisvá. Við blasir, þó að hér hafi nokkuð vel tekist til með að fá fólk til að færa sig yfir í rafmagnsbíla, þann hluta þjóðarinnar sem hefur efni á slíku, að það er tíu sinnum meiri fjöldi en sem nemur íslenskum bíleigendum sem hingað kemur á hverju ári; kom fyrir Covid og eftir að Covid hætti og er gríðarlegur fjöldi sem ekur hér um á mjög svo mengandi bílum. Góður árangur Íslendinga sjálfra í þessum fyrstu skrefum orkuskiptanna var að engu orðinn strax á þessu ári þegar horft var yfir hinn mikla fjölda þeirra sem óku um á mengandi dósum.

Hvers vegna er ég að segja þetta? Þetta er ein af fjölmörgum birtingarmyndum þess að hugur og hönd fara ekki nægilega saman í því sem við segjumst ætla að gera, skrifum undir og undirgöngumst sem samfélag og sem þátttakendur í samfélagi þjóðanna. Og hvað þyrfti til? Hér þyrfti skýrlega til hvata sem myndu leiða til þess að allur bílafloti bílaleiganna yrði rafknúinn og við þyrftum fleiri hvata til að bílafloti landsmanna, líka þeirra fátækustu, sem hefðu undir venjulegum kringumstæðum ekki efni á slíkum farartækjum eða yfir höfuð efni á nokkrum farartækjum, yrði þar með talinn. Sama ætti að gilda um sjóför, skip og flugvélar.

Og hvað þyrfti að fylgja hér á eftir til að fyrirbyggja það sem væri að óbreyttu mikil skaðsemi og mikill fjárhagslegur baggi á okkur, börnum okkar og barnabörnum? Það eru nefnilega á næsta ári að ganga í gildi lög sem sekta okkur hreinlega ef kolefnisspor okkar er yfir ákveðnum mörkum sem það er því miður í dag og um ófyrirsjáanlegan tíma. Um leið og við erum að leggja áherslu hér á kjör barna og fjölskyldna sem búa við lökustu kjörin á Íslandi erum við líka að benda á það að við erum í raun að gera þeim mjög erfitt um vik sem eru fjárhagslega verst settir í samfélaginu hvað það varðar að fara í orkuskiptin almennt, hvað varðar farkosti, en ekki síður það sem við blasir frá og með næsta ári, þegar Evrópulögin fara að kveða á um sérstakar sektir, sérstök gjöld sem bitna í þessu sem öðru verst á þeim sem verst eru settir.

Hvað þurfum við að gera til að fyrirbyggja sektir og andlitsmissi á alþjóðavísu, græna eylandið með alla hreinu, grænu, góðu orkuna? Það sem við þyrftum að gera, að mínu mati, er að fara í markvissa stefnumótun og aðgerðir til þess að framleiða hér rafeldsneyti sem við erum þegar farin að gera en alls ekki með nægilegum hætti til að um verði að ræða orkuskipti sjálfbær í skipaflota. Það kostar að gera út og breyta vélum fiskiskipa og farskipa á þann veg að hægt sé að knýja þau með innlendum orkugjöfum, rafeldsneyti, vetni eða metanóli. Við erum að innheimta hér á áttunda milljarð króna í kolefnisgjöld sem eru sett ofan á eldsneyti. Það sem við þurfum nauðsynlega að gera eins og aðrar þjóðir hafa gert er að setja slík gjöld í tiltekinn sjóð, kolefnissjóð, sem fer þá í það að styðja við umskipti á borð við það sem ég er hér að tala um, til að fyrirbyggja sektir og andlitsmissi á alþjóðavísu.

Eftir höfðinu dansa limirnir í þessu sem öðru. Ef við sammælumst um eitthvað, setjum það í lög, skrifum undir sáttmála, förum síðan ekki eftir því, er þá nokkur von til þess að lögin sem sett eru í þessum sal verði virt eða höfð í hávegum? 7,5 milljarðar — það er 25% hækkun milli ára á þessu kolefnisgjaldi sem lagt er á landsmenn alla og á að fara í sérstakan sjóð sem sér um fjárfestingar í þessum grænu lausnum sem við höfum þegar undirgengist og sammælst um. Í slíkan sjóð er hægt að sækja um styrki til að gera þá breytingu sem gera þarf á vélakosti skipanna og eftir atvikum bílanna og flugvélanna.

Lífeyrissjóðir okkar eru búnir að skuldbinda sig og undirrita sáttmála um grænar fjárfestingar á komandi árum upp á hundruð milljarða. Hvar eru nú þeir grænu fjárfestingarkostir helst? Alla vega ekki í því að standa við sáttmálann um orkuskiptin og fyrirbyggja sektir og refsingar. Við þurfum að koma þessu í farveg. Og hverjum ber að gera það? Er það löggjafarvaldið? Nei, það er væntanlega framkvæmdarvaldið en eftirlitsskylda okkar sem förum með löggjafarvaldið hlýtur að vera gild í þessu sem öðru. Við þurfum að sjá til þess að þessi vegferð, eins og er í tísku að kalla hlutina núna, verði hafin af fullum krafti. Það er alls ekki þannig núna, þetta er allt í orði en hreint ekki á borði sem skyldi. Fyrirheitin og talið og yfirlýsingarnar skortir ekki. Þetta er hreint efnahagsmál. Ein af leiðunum okkar að því að hér hafi allir nóg er sannarlega að þessi framleiðsla á grænni orku og þessi orkuskipti gangi eftir, afli okkur tekna og firri okkur sektum. Ég held að við þurfum að sammælast um að gera það samstiga og með markvissum hætti. Útvarpsgjald var lagt á alla landsmenn en síðan var útvarpsgjaldinu bara dreift á hina og þessa liði, kannski að laga flugvöll hér eða byggja hús þar. Ef lagt er á sérstakt kolefnisgjald til að standa fyrir því sem þarf að kosta til skulum við gæta þess að það kolefnisgjald fari til þeirra hluta og að hinar fjárhagslegu forsendur verði til staðar svo að við lendum ekki í sektum og orðsporsmissi innan lands sem utan. Þetta vil ég sjá lagfært svo fljótt sem verða má. Eftir sem áður skulum við halda okkar áherslum og athygli á því mikilvægasta samfélagslega verkefni sem við blasir sem er að rétta hag þeirra sem ekki eiga til hnífs og skeiðar í hinu dýra íslenska samfélagi nútímans.