fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni fyrir góða ræðu. Hann stiklaði svolítið á mörgum atriðum sem hafa verið mér ofarlega í huga og það gerði mig einstaklega ánægða að heyra þann áhuga og þá miklu áherslu sem hv. þm. Jakob Frímann Magnússon lagði á orkuskiptin og loftslagsáhrifin sem eru nú þegar byrjuð að eiga sér stað. Við sjáum það núna á methita í nóvembermánuði hér á Íslandi að þetta eru áhrif sem er of seint að snúa við, eins miður og mér þykir að segja það. En það er þó hægt að hægja á þeim ef við höldum rétt á spilunum.
Hv. þingmaður kom inn á orkuskiptin og einnig inn á alþjóðaskuldbindingar sem Ísland er ekki nógu duglegt við að innleiða og halda sig við. Til að nefna dæmi var að birtast frétt í gær þar sem Ísland þurfti að þola skammir frá Eftirlitsstofnun EFTA fyrir að innleiða ekki reglugerð um vinnutíma launafólks sem mér þykir mjög miður. Það segir samt rosalega mikið um það hvað við erum léleg — afsakið — í að halda okkur við alþjóðaskuldbindingar sem við erum bókstaflega skuldbundin til þess að innleiða. Við gengum í EES, við tókum þetta á okkur.
Mig langar að spyrja í samhengi við fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2023, fyrst að orkuskiptin eru hv. þingmanni ofarlega í huga, sem og mér, hvort ríkisstjórnin hefði getað lagt einhvern meiri metnað í þennan málaflokk og sett meira fjármagn í hann. Eins og ég benti á í fyrstu ræðu minni í gær fara bara 2% af framlögum í fjárlögunum til umhverfis- og loftslagsmála, sem er náttúrlega skammarlegt.