fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvar sitt og ég get tekið undir það að það mætti verja mun meiri fjármunum, tíma og orku í það að standa við skuldbindingar okkar í þessu samhengi. Heiður okkar er í húfi, ásýnd okkar og trúverðugleiki sem grænu eyjunnar í hánorðri sem er með mestu og þekktustu velferðarþjóðum heims. Við eigum ekki að bjóða upp á það að skjóta okkur í fótinn með því að hunsa það sem við höfum undirgengist og láta sem ekkert sé og láta sekta okkur. Við eigum ekki heldur að vera að láta rassskella okkur ítrekað í Strassburg; mál sem hefði svo auðveldlega verið hægt að semja okkur frá. Þó að það sé óskylt umhverfismálum eða þeirri umræðu sem hér á sér stað þá kosta hver málaferli í Strassburg fullt af peningum. Þegar fyrir liggur að við erum með 17 mál í pípunum, 17 rassskellingar til viðbótar við það sem kom í fyrra, hvers vegna í ósköpunum erum við ekki búin að semja okkur frá þeirri niðurlægingu og þeirri fjárhagslegu sóun?
Ég var að benda á það hér áðan að 7,5 milljarðar eru settir í ríkissjóð undir heitinu kolefnisgjald. Til hvers er slíkt kolefnisgjald nema til þess einmitt að við förum úr kolefnissporum og förum úr þeirri óheillavegferð refsinga, sekta og niðurlægingar sem blasir við. Þetta lendir á okkur, börnunum okkar og barnabörnum að óbreyttu. Það er ekki seinna vænna en að hefja þessa vegferð strax, hysja upp um okkur, og láta ekki dýrmætt fé í sektir til annarra, sem hefði átt að geta nýst okkur til að standa við það að vera velferðarsamfélag þar sem enginn er við fátæktarmörk.