fjárlög 2023.
Frú forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni fyrir gott svar. Ég get tekið undir margt af því sem kom fram í svari hv. þingmanns ef ekki allt. Það er ekkert leyndarmál að hv. þm. Jakob Frímann Magnússon, og flokkurinn sem hann starfar fyrir hér á þingi, lætur málefni fátæks fólks sig varða. Mér þykir það mjög mikil bót og fagna veru þeirra í pólitík einstaklega mikið. Í samhengi við orkuskiptin og við það að ríkið er að leggja mikið af fjármagni og púðri í að niðurgreiða rafbíla langar mig bara að benda á að þetta er mismunun — þetta er kannski ekki mismunun en þetta skapar einhvers konar misræmi í möguleikum á að geta tekið þátt í þeirri grænu byltingu sem er að eiga sér stað og við munum vonandi ná að taka lengra á næstu árum. Raunin er sú að það hafa ekki allir efni á rafbílum, jafnvel þó að þeir séu niðurgreiddir. Ég ætla ekki að láta eins og ég sé ein af þeim bágstöddu. Ég er hins vegar stúdent og hef ekki efni á rafbíl jafnvel þó að hann sé niðurgreiddur. Ég vil frekar fá góðar almenningssamgöngur, öflugar almenningssamgöngur. Ég vil frekar að þetta fjármagn sem fer í það að niðurgreiða rafbíla, sem mun einungis vera fyrir einn hóp í samfélaginu, fari í það að stórefla almenningssamgöngur hér á Íslandi og setja okkur metnaðarfyllri markmið til þess að komast á sama stað og hin Norðurlöndin í kringum okkur, sem eru öll með lestarkerfi, neðanjarðarlestarkerfi, sporvagna.
Mig langar því að spyrja hv. þm. Jakob Frímann Magnússon hvort hann taki undir þau sjónarmið að það væri e.t.v. betra, og væri ekki jafn mikil mismunun í því fólgin, að við myndum frekar leggja það fjármagn sem fer í að niðurgreiða rafbíla í að stórefla almenningssamgöngur.