fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni hennar góða innlegg í umræðuna hér og þakka henni fyrir spurningu til mín sem ég verð að svara játandi og vera henni innilega sammála. Ég var miðborgarstjóri í Reykjavík um langt árabil og mælti fyrir því þegar árið 2009 að við kæmum okkur upp litlum og léttum rafknúnum vögnum til að skutla fólki á fimm og tíu mínútna fresti þvers og kruss um bæinn í staðinn fyrir að vera með þessa stóru gulu hlunka hálftóma. Enn þann dag í dag er þetta hálftómt, þeir teppa umferð og eiga í stökustu erfiðleikum með að komast inn í þröngar götur, eins og Bergþórugötu upp á Barónsstíg og svona. Það vantar algjörlega þessa hugsun sem við erum að mæla fyrir hér inn í samgöngukerfi borgarinnar. Að sjálfsögðu ættu þeir sem eru ungir og eru í námi, og því ekki efnamiklir, að geta átt kost á því hér eins og í öllum nágrannalöndunum. Danir, okkar gamla herraþjóð, eru algjörlega til fyrirmyndar. Maður stekkur upp í vagn eða sporvagn eða hvað sem er á nokkurra mínútna fresti, getur stólað á slíkar lausnir. Það er búið að tala um þetta. Ég talaði ítrekað um þetta inni í Reykjavíkurkerfinu, öllum leist rosalega vel á það. En jafnvel háttsettir embættismenn þar viðurkenndu eftirfarandi fyrir manni í persónulegum samtölum: Maður situr á fundum frá morgni til kvölds með hinum og þessum gestum og allir að koma og fara, allir að leggja þetta og hitt til. Svo kemur maður heim að kvöldi dauðþreyttur og hugsar: Hver í dauðanum á svo að framkvæma allt það sem búið er að tala um? Þar liggur vandinn. Hugur er eitt, hönd framkvæmda er annað og bilið þar á milli, hjá ríki og borg og sveitarfélögum, er því miður oft breitt.