fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Í 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, segir í 1. mgr., með leyfi forseta:
„Öllum, sem þess þurfa, skal tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og sambærilegra atvika.“
Ég velti fyrir mér hvort einhver velkist í vafa um það að þessi 1. mgr. 76. gr. almannatryggingalaganna sé þverbrotin og hafi verið það um árabil. Það hefur verið mikið ákall eftir nýrri stjórnarskrá þó að ekki hafi farið eins mikið fyrir umræðunni um það núna eins og var fyrir kosningar. En það var minni umræða um það hvernig sú sem við eigum fyrir er þverbrotin, ekki bara þessi 1. mgr. Ég ætla að fara með ykkur í gegnum alla 76. gr., sem telur þrjár málsgreinar, og rökstyðja það hvernig hún er brotin. Við getum strax litið á 2. gr. stjórnarskrárinnar sem kveður á um þrískiptingu ríkisvaldsins þar sem á engan veginn og ekki nokkurn tíma að vera sú staða uppi að framkvæmdarvaldið og löggjafarvaldið séu að kúra saman í sömu holunni og undir sömu sænginni. En það er akkúrat gert hér á hinu háa Alþingi Íslendinga þar sem framkvæmdarvaldið, ráðherrarnir, eru líka kjörnir sem alþingismenn, hvorki meira né minna. Þeir greiða atkvæði um eigin tillögur og frumvörpin sem þeir sjálfir leggja fram hægri vinstri, með okkur hinum alþingismönnunum.
Svo ég líti nú aftur á 1. mgr. 76. gr. þá er hún ákveðin lagaáskilnaðarregla sem kveður á um að Alþingi, löggjafinn, á að setja skýrar reglur um það hvernig við ætlum að tryggja fólki sem þarf á okkur að halda þau réttindi sem eru lágmarksréttindi í því sem við myndum vilja kalla réttarríki, hvað þá eins og það ríki sem við viljum segja að við séum, siðmenntað lýðræðislegt samfélag. Hvernig skyldi þá standa á því að ég hef mælt hér sjálf persónulega og prívat fyrir hönd okkar í Flokki fólksins fyrir breytingartillögum við fjárauka þar sem er verið að biðja um litla fjármuni, takið eftir, litla fjármuni í stóra samhenginu þar sem ríkissjóður er að deila út yfir 1.000 milljörðum? Við erum að biðja um 360 millj. kr. til handa eldra fólki sem býr við sára neyð, eldra fólki sem hefur ekki í nein önnur hús að venda en að reiða sig á berstrípaðar greiðslur almannatrygginga, á engin réttindi í lífeyrissjóði. Þetta eru tæplega 6.000 einstaklingar. Margir af þeim, eins og ég hef áður bent á, voru öryrkjar áður en við 67 ára aldurinn, sem sagt akkúrat á miðnætti þar sem slengdust saman árin 66 og 67 urðu þeir bara fullfrískir og örorkan fauk út um gluggann. Þeir urðu ellilífeyrisþegar og um leið féll niður það sem mjög margir reiða sig á í örorkukerfinu, hin svokallaða aldurstengda örorkuuppbót. Margir hafa nefnilega spurt: Hvers vegna lækkar framfærslan þegar þú verður 67 ára og verður ellilífeyrisþegi? Það er vegna þess að þá ertu ekki lengur viðurkenndur sem öryrki og hin svokallaða aldurstengda örorkuuppbót dettur niður. Hún er mishá, það fer eftir því hversu lengi þú hefur verið í þessu örorkukerfi, hversu ungur eða ung þú varst þegar þú neyddist til að lenda þar, kannski varstu orðin fullorðin og bara fá ár fram að töku ellilífeyris. En þetta eru allt saman krónur, mismargar krónur, en í rauninni svíða, brenna og meiða þá sem verða af þeim við það að verða 67 ára.
Hinn hluti þessa hóps eru fullorðnar konur, langömmur okkar, konur sem eyddu starfsævinni í það að vera heimavinnandi húsmæður. Það starf hefur löngum verið ansi vanmetið þó að mér hafi alltaf þótt það vera eitthvað það mikilvægasta starf sem hægt er að inna af hendi, geta átt þess kost að ala önn fyrir börnunum sínum og hugsa um þau. En hvað um það. Þessar konur eiga sem sagt engin lífeyrisréttindi, engin réttindi úr lífeyrissjóði og hafa ekki safnað neinum slíkum í gegnum starfsævina. Það að ríkisstjórnin skuli hafa sagt nei við því þegar við erum að biðja um að öryrkjum og þessum hópi eldra fólks, hvort tveggja hópar sem eru inn á almannatryggingakerfinu, sé ekki mismunað svona hrapallega, er farið að koma mér verulega á óvart. Ég hélt einfaldlega, þegar ég horfi hér á 1. mgr. 76. gr., að það væri illmögulegt að koma svona fram, brjóta svona stjórnarskrána augljóslega á þegnunum án þess hreinlega að það myndi fljúga fjöllum hærra og vera hér í umræðunni úti um allt hvern einasta dag. Í þessari grein eru stjórnvöld skikkuð til þess að tryggja með lögum þau réttindi að aðstoða alla þá sem þurfa á aðstoð að halda. Þegar við tölum um örbirgð — það stendur í 1. mgr. berum orðum hugtakið örbirgð — þá er það, virðulegi forseti, fátækt. Hér er verið að tala um fátækt, veikt fólk, fólk á örorku, aldraða, atvinnulausa og við erum að tala um fátækt og allt sem lýtur að sambærilegum atvikum. Mér er algerlega fyrirmunað að skilja hvernig hægt er að sverja þess eið hér, þegar við höfum gengið götuna í gegnum kosningabaráttu, talið kjósendum trú um það að það sé best að kjósa mig af því að ég er svo frábær, ég ætla að gera allt fyrir þig, hafið ekki áhyggjur, gefið mér valdið og þér mun vegna vel, en síðan er eins og það sé bara ein rödd þegar kemur að atkvæðagreiðslunni. Þá allt í einu geturðu ekki fylgt sannfæringu þinni, alveg sama hversu illa þér líður með þetta, vegna þess að þá myndi bara stjórnarsamstarfið springa í loft upp, ekki satt? Þau verða að tala sem einn maður því að annars fer allt saman á hliðina. En það þýðir ekki að það eigi að bitna á fátæku fólki, veiku fólki og eldra fólki þegar við vitum hvernig þessi ríkisstjórn hefur verið að fara með fjármuni almennings, okkar sameiginlegu sjóði, þegar við vitum að það er verið að biðja um umboð til að kaupa hér í Snobbhill niðri á Austurbakka fyrir 6 milljarða kr., sem er nýja Landsbankahúsið, þegar við vitum að það er ekkert mál að mublera upp í Seðlabankanum og laga Svörtuloftin fyrir ríflega 3 milljarða kr. Það vafðist ekki fyrir ríkisstjórninni að eyða meiru en 2 milljörðum kr. í stólaskiptin og búa til nýtt ráðuneyti svo að þessi ríkisstjórn gæti haldið áfram völdum. Það vafðist heldur ekki fyrir þeim á síðasta kjörtímabili að lækka bankaskattinn sem var þó undir 0,5%. Ef hann væri í dag eins og hann var fyrir tveimur árum síðan værum við að fá 9 milljörðum meira í ríkissjóð, hvorki meira né minna.
Ég vil einfaldlega segja, virðulegi forseti, að 1. mgr. 76. gr. er brotin í mél. Ég mælti einnig fyrir breytingartillögu um 150 millj. kr. greiðslu til hjálparstofnana sem gefa fátæku fólki að borða og sérstaklega langar þær að gera vel við fólkið fyrir jólin, einhverja smábreytingu til hátíðabrigða, ekki bara matinn sem hjálparstofnanir fá og er kominn á síðasta söludag, ekki bara vörur sem eru komnar á síðasta söludag heldur eitthvað pínulítið veglegra. En það er ekki hægt. Ég veit samt sem áður að úr skúffufé ráðherra voru gefnar einhverjar krónur. Ég veit t.d. um 750.000 kr. sem fóru til Fjölskylduhjálpar Íslands. 750.000 kr. duga u.þ.b. fyrir 100 hangilærum. Við höfum nú gjarnan tengt jólin við uppstúf og hangikjöt, grænar baunir, rauðkál og yndislega fagrar kartöflur en þessi matardiskur er ekki í boði fyrir fátækt fólk, það eru algerlega hreinar línur. Haldið þið bara áfram að éta grjónagraut og hafragraut og mat sem er kominn á síðasta söludag. Þvílík lítilsvirðing, virðulegi forseti. Það var sem sagt ekki hægt að greiða atkvæði með 150 millj. kr. til handa fátækasta fólkinu í landinu, fólki sem þarf að taka á öllu sínu til að horfast í augu við eigin vanmátt og leita sér aðstoðar hjá hjálparstofnunum. Þau eru hreinlega slegin utan undir. Enn er verið að brjóta 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar þar sem segir að það eigi að tryggja með lögum aðstoð vegna t.d. örbirgðar í þessu tilviki, fátæktar.
Ég ætla að víkja núna að 2. mgr. 76. gr. Þar stendur: „Öllum skal tryggður í lögum réttur til almennrar menntunar og fræðslu við sitt hæfi.“ Ég held að það sé öllum ljóst og það vita það allir sem vita vilja að Íslendingum, fólkinu okkar hér, hvaðan sem þau koma og hver sem þau eru, ef þau þurfa að leita sér menntunar, er mismunað eftir efnahag foreldra. Þeim er mismunað líka eftir búsetu. Það er brot á 2. mgr. 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, þverbrot. Það á aldrei að vera svoleiðis þegar talað er um að öllum skuli tryggður í lögum réttur. Ég lærði það í lagadeild Háskóla Íslands að ég ætti að lesa greinarnar samkvæmt orðanna hljóðan. Það væri númer eitt, tvö og þrjú. Ég á ekki að þurfa að leita lögskýringa eða vangaveltna eða biðja um einhverjar skýrslur eða álit úti í bæ til að segja mér hvað hér stendur því það er skýrt. Það er kýrskýrt. Þessi grein, 2. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar, er brotin í mél. Það er alveg sama hvert litið er í samfélaginu. Það er alls staðar verið að mismuna fólki, alls staðar.
Snúum okkur að 3. mgr. 76. gr. þar sem stendur: „Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.“ Það eru vel á annað þúsund börn á biðlista eftir því að fá greiningar, fá talkennslu, biðlista eftir eðlilegri hjálp til þess að efla traustið, sjálfstraustið, til að efla litlu börnin okkar, einstaklingana okkar, til að komast út í samfélagið, út í lífið. Að hugsa sér, hér er ég að lesa einhverja mikilvægustu greinina að mínu viti í stjórnarskránni sem á að tryggja mannréttindi, tryggja án nokkurs vafa að ríkisvaldið geti hvorki mismunað okkur né hunsað það að hjálpa okkur ef við erum hjálparþurfi. En þrátt fyrir það þá er það gert.
Ég mun mæla aftur fyrir þessum breytingartillögum við 3. umr. fjáraukalaga. Það verður að breyta um einhverjar krónur til þess að það gangi, formsins vegna. Aftur mun ég óska eftir nafnakalli en á meðan þá er ég líka að biðja um sól og gott veður og gleðileg jól fyrir fólkið sem við erum að berjast fyrir og að ríkisstjórnin sjái að sér og segi: Já, við viljum auðvitað hjálpa ykkur. Til þess erum við hér.
533 milljarðar er hagnaður sjávarútvegsfyrirtækjanna frá árinu 2009. Ég er að tala um hreinan hagnað. Hreinan hagnað þegar búið er að greiða allt annað, greiða þessa 85,3 milljarða sem við fengum í veiðigjöld, búið að greiða alla skatta og skyldur, launatengd gjöld, veiðarfæri og bara nefnið það. Nú sjáum við að íslenska krónan hefur fallið um 14% gagnvart dollar. Húrra fyrir sjávarútveginum okkar. Hann er að græða á tá og fingri og mikið er það ánægjulegt fyrir okkur á meðan það er erfiðara fyrir fólkið í landinu sem situr uppi með stórhækkandi vöruverð, sem situr uppi með þvílíka kjaragliðnun að manni verður hálfbumbult að hugsa um það og mér verður enn þá meira bumbult þegar ég hugsa um froðusnakkið sem flæðir hér út um allar koppagrundir, verið að tala um að hér sé jöfnuður hvað mestur og hér sé allt frábært og hér sé meðaltalið æðislegt og allt svo yndislegt að hálfa er meira en hellingur. Hver fer út í búð og verslar fyrir meðaltal? Alla vega ekki ég, svo mikið er víst. Hver fer út í búð þegar hann er orðinn blankur tíunda hvers mánaðar og segir: Heyrðu, þeir segja það í ríkisstjórninni að að meðaltali hafi það allir svo gott þannig að ég er hér með fulla vasa af meðaltölum þótt ég eigi enga peninga. Ég hlýt að geta verslað hjá þér fyrir meðaltöl, er það ekki, ágæti verslunareigandi? Þetta minnir mig á það þegar litlu börnin fóru í gamla daga og héldu að þau gætu keypt nammi fyrir steina. Ég var stundum með fulla vasa af steinum og hélt að ég væri moldrík manneskja en því miður þá virkar það ekki í raunheimum að við getum labbað út í búð með fulla vasa af steinum og keypt okkur þær nauðþurftir sem við þurfum. Það er þó ekki svo að fólk sem býr við kröpp kjör og í sárri fátækt sé það ekki nákvæmlega allan ársins hring. Það er í nákvæmlega sárri fátækt allan ársins hring og það er meira að segja skattlagt í þessari sáru fátæktargildru sem svo rammlega hefur verið reist um þau.
En þó að fólk sé fátækt allan ársins hring er hugarfarið einhvern veginn öðruvísi á þessum tíma, það er í þjóðarsálinni, þegar það eru að koma jól. Við erum hér í svartasta skammdeginu. Okkur langar til að setja ljós í gluggann. Okkur langar til að gleðja hvert annað. Þetta er hátíð ljóss og friðar, hátíð fjölskyldunnar. Af hverju mega ekki allir taka þátt í því? Ég skil það ekki. Mér er það algerlega fyrirmunað. En eins og ég sagði áðan, 533 milljarðar sem sjávarútvegsfyrirtækin okkar höfðu í hreinan hagnað af sjávarauðlindinni frá árinu 2009. Þar fyrir utan greiddu þau 85,3 milljarða í auðlindagjald. Ég er svo gróf að segja: Vá, ég vildi að við hefðum fengið helminginn, erum það ekki við sem eigum auðlindina? Hvernig stendur á því að það er nóg að kaupa eitt tonn af þorski og ég get bara veitt þetta tonn ár eftir ár á nýju kvótaári, ár eftir ár? Ég er kannski búin að veiða þetta sama tonn um árabil og næsta kynslóð tekur við því og maður er búinn að veiða sama tonnið bara upp í 1.000 eða 2.000 tonn, hver veit? Það verður að gera eitthvað í þessu sambandi, virðulegi forseti, þetta gengur ekki upp.
Í rauninni þarf ég að láta setja mig aftur á mælendaskrána því að ég hef ekki enn þá komist á flug um bankaskattinn. Þar getum við náð í, virðulegi forseti, ansi margar krónur, réttlátar krónur, sem myndu koma sér vel fyrir þá sem hafa það bágast í samfélaginu.