153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:48]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland frábæra ræðu. Ég vildi að ég gæti komið hérna átta, níu sinnum í andsvör og rætt hina og þessa hluti en því miður eru þingskapalög takmarkandi að því leyti. En mig langaði að byrja á að tala um það sem hv. þingmaður benti á, 76. gr. stjórnarskrárinnar og það sem þar stendur, „öllum sem þess þurfa“. Það stendur ekki „öllum nema einhverjum“. Nei, það er nefnilega þannig. Ef við skoðum 75. gr. stendur: „Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa.“ Svo heldur áfram: „Þessu frelsi má þó setja skorður …“ Allt í lagi. Ef við förum í 70. gr. er hún svipuð og 76. gr., en í 70. gr. stendur:

„Öllum ber réttur til að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur eða um ákæru á hendur sér um refsiverða háttsemi með réttlátri málsmeðferð innan hæfilegs tíma fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli.“

Þarna er ekki sagt eitthvað „nema“. Nei.

Ef við förum síðan aðeins aftar, í 65. gr., þá stendur:

„Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.“

Allir. Þarna stendur ekki „allir nema“, en samt höfum við nýlegt dæmi þar sem fatlaður einstaklingur sem hafði sótt hér um hæli fékk ekki að njóta þessara réttinda af því að ríkið ákvað að það væri eitthvað annað. Þetta er farið að minna mig dálítið á bókina Dýrabæ eftir George Orwell þar sem var svo góð setning, með leyfi forseta: Öll dýrin eru jöfn en sum eru jafnari en önnur.

Mig langaði að spyrja hv. þingmann: Erum við orðið í þjóðfélagi þar sem sum dýrin eru jafnari en önnur?