153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:50]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni Gísla Rafni Ólafssyni fyrir þetta góða andsvar. Svarið er náttúrlega alveg afdráttarlaust: Já. Það er nefnilega þannig hér að sum dýrin eru jafnari en önnur. Við lifum í samfélagi þar sem sérhagsmunir ráða för. Við lifum í samfélagi þar sem fólki er gróflega mismunað eftir efnahag. Við lifum í samfélagi þar sem í rauninni er skellt skollaeyrum við neyðarópum almennings sem hefur það bágt. Það er ekki bara í 76. gr. Það má drepa niður á mýmörgum öðrum stöðum í grundvallarlöggjöfinni okkar, stjórnarskránni, og sjá hvernig um hana er valsað — við skulum reyna að vera voða settleg — af mikilli léttúð, svo ekki sé meira sagt. En það sem við höfum verið að horfa á, eins og hv. þingmaður talaði um; meðferðin á þessum unga manni sem var tekinn eins og hver annar hveitipoki og troðið aftur í bíl án þess að honum væri sýnd nokkur einasta virðing — þetta var svo mikil vanvirðing við hann sem einstakling og hann er fatlaður maður. Hjólastóllinn sem hann hafði haft til afnota fékk ekki einu sinni að fylgja honum, það var eitthvert rusl sem var sent með honum og síðan hef ég ekki haft neinar fregnir af honum, en kannski hv. þingmaður viti meira um það. En þetta er eitt af þessum atvikum sem við fáum öll sting í hjartað yfir og tár í augun og skiljum ekki í hvernig samfélagi við búum eiginlega.