153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:53]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Og já, við fáum sting í hjartað, ég held að ég og hv. þingmaður fáum dálítið oft sting í hjartað af því að við látum mannúð okkur skipta. Eitt af því sem við hv. þingmenn tölum oft um er fátækt á Íslandi. Mér er minnisstætt fyrr í vor og aftur í haust þegar ég ræddi um fátækt á Íslandi. Hér kom á fullu í andsvör hver Sjálfstæðisflokksþingmaðurinn á fætur öðrum og benti mér á að það væri engin fátækt á Íslandi, það væri bara allt í lagi, alls konar kannanir frá alls konar löndum sýndu að hér væri bara frekar lítil fátækt að meðaltali. Þegar hv. þingmaður lagði fram tillögu hér fyrir nokkrum dögum síðan um matarúthlutanir til þeirra sem verst standa þá var greinilegt að hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar trúðu því að það væri engin fátækt og það þyrfti enginn mat um jólin því að það hefðu það allir svo gott. Hvað getum við gert, hv. þingmaður, til að sprengja þessa kúlu, búblu eða hvað við köllum það á íslensku, sem þessir hv. stjórnarþingmenn virðast lifa í þar sem ekkert skortir?