153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:55]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Hvað getum við gert til að sprengja þessa búblu? Það er spurning hvort maður gæti t.d. farið að galdra. Ég held að eina leiðin sé að verða göldróttur og ég kann það ekki, því miður. En annað sem gæti sprengt þessa búblu væri að þau gerðu það sjálf, að þau fyndu það í hjartanu að þetta gengi engan veginn. Ég tala af eigin raun þegar ég tala um fátækt. Ég er móðir fjögurra barna sem öll eru komin á legg í dag, en það voru mörg sár sporin þegar ég var að ala þau upp eftir að faðir þeirra hafði handleggsbrotnað og gengið í gegnum læknamistök í sex ár. Við áttum ekki til hnífs og skeiðar nema að litlu leyti og gátum ekki veitt börnunum okkar neitt af því sem hefði kannski talist eðlilegt í samfélaginu. Það var ekki neinn munaður, það var bara reynt að skrimta frá degi til dags. Ég skil því af öllu hjarta hvernig foreldrum og fólkinu okkar líður sem er að berjast hvern einasta dag fyrir nauðþurftum og það er ekki einu sinni svo að við tryggjum borgurunum okkar þak yfir höfuðið. Við sjáum hvernig fólk, fíklarnir okkar, þeir sem eru fársjúkir og fárveikir, alkóhólistar og fíklar, eru liggjandi hér eins og hráviði í einhverjum bílastæðakjöllurum til að ná í sig yl til að frjósa ekki úr kulda. Nú er komið í frost. Þá er bara beðið um tjöld og eitthvað af borgarstjóra. Hvað ætlar hann að gera? Láta þau fá prímus í tjaldið? Ég er orðin gjörsamlega algjörlega orðlaus yfir því hvernig er verið að fara með fólk hérna. Það eina sem við getum gert, hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson, er að halda áfram að pikka í búbluna og vona að hún springi og þau sjái sólina fyrir rest.