fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir ræðuna. Mig langar svolítið að spyrja hv. þingmann út í þá nálgun sem ég hef verið að taka í ræðum mínum í umræðunni um þetta mál. Ég gerði það reyndar núna í nótt og ég vænti þess ekki að þingmaðurinn hafi endilega verið að fylgjast með þá en ég endurtók einhverja af þeim punktum hér fyrr í dag. Þetta varðar það sem ég tel vera viðvarandi vandamál í okkar samfélagi, okkar kerfi, sem er þessi hugarfarsvilla sem ég tel að gegnsýri allt kerfið okkar og geri það að verkum að fólk er stanslaust, líkt og hv. þingmaður nefndi, mætt með betlistafinn til að rífast um einhverjar krónur og aura þegar við vitum að peningurinn er til. Þetta snýst ekkert um það. En mér hefur lengi þótt vandamálið í grunninn vera að það sé svona sem ákveðnir aðilar, eða jafnvel flestir, sjái fyrir sér að kerfið eigi að vera, að það sé þannig að þeir sem eru kannski best í stakk búnir til þess að vinna mikið og annað slíkt haldi uppi góðum lífsstandard og svo eigi þeir sem eiga erfiðara með það einhvern veginn bara að þiggja aðstoð og ölmusu og alltaf vera í þeirri stöðu að vera að biðja um meiri graut. Mig langar að spyrja hv. þingmann þar sem hún nefnir 76. gr. stjórnarskrárinnar, sem er sannarlega ekki nýtt ákvæði. Þar segir, með leyfi forseta:
„Öllum, sem þess þurfa, skal tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og sambærilegra atvika.“
Það sem mér finnst svolítið áhugavert við þetta er að mér finnst að einhverju leyti þetta ákveðna hugarfar endurspeglast í þessu. (Forseti hringir.) Er hv. þingmaður sammála mér um að við þurfum svolítið að hugsa þetta (Forseti hringir.) allt upp á nýtt, að í stað þess að líta alltaf svo á (Forseti hringir.) að við séum af góðmennsku að hjálpa fólki þá gerum við alla þegna samfélagsins (Forseti hringir.) jafngilda þannig að þeir þurfi ekki alltaf að vera að biðja um hjálp?