153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:00]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur fyrir andsvarið. Þetta er jú allt mannanna verk. Það er algerlega mannanna verk að það skuli alltaf vera þjóðfélagshópur hér sem er settur hjá garði. Það er mannanna verk og það er í boði stjórnvalda að hér skuli fólk vera múrað inn í rammgerðar fátæktargildrur. Flokkur fólksins hefur mælt fyrir 400.000 kr. lágmarksframfærslu skatta- og skerðingarlaust. Af hverju 400.000? Af hverju ekki 350.000 eða 450.000? Einhvers staðar er þessi lína og við reiknuðum hana svona sirkabát út frá því hvernig framfærsla hefði verið ef þessi stórkostlega kjaragliðnun hefði ekki orðið undanfarin ár og síðan eftir hrun, þetta var talan. Við erum með allt þetta fjármagnað án þess að þurfa að hækka skatta en einhverra hluta vegna búum við við stjórnvöld sem eru svo ofboðslega mikil sérhagsmunagæsluöfl að almannahagur virðist í raun ekki snerta þau. Það er auðvitað ömurlegt að vera að reyna að höfða til betri manns stjórnmálamannsins, þess sem er með völdin, til að biðja hann um gæsku, til að biðja um mannúð til að hjálpa fólki sem á bágt. Auðvitað er ömurlegt að við skulum ekki tryggja öllum okkar þegnum almennilega örugga framfærslu allan ársins hring, því að við höfum efni á því. En forgangsröðun fjármuna er ekki fyrir fólkið fyrst heldur allt hitt, algerlega öfugt við það sem er kjörorð Flokks fólksins. Við segjum: Fólkið fyrst, svo allt hitt. Ef það yrði tekið á því t.d., og ég veit að hv. þingmaður er mér hjartanlega sammála, og ég veit að Píratar eru með þetta hjarta, við viljum setja fólkið í fyrsta sæti, það fer ekkert á milli mála — en það breytir ekki þeirri staðreynd að á meðan hugarfarið er svona hjá stjórninni þá breytist ekki neitt. Þetta er jú mannanna verk.