153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:02]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir svarið. Ég þóttist svo sem vita að við værum sammála í grunninn. Við erum kannski ekki sammála um útfærsluna í smáatriðum. Við Píratar höfum a.m.k. lagt til umræðu um og skoðun á talsvert róttækum leiðum til að tryggja að allt fólk geti lifað mannsæmandi lífi. Þar er ég að sjálfsögðu að vísa til borgaralaunanna svokölluðu, skilyrðislausrar grunnframfærslu. En það hefur sannarlega í umræðu um þau mál verið bent á, alla vega eins langt og við erum komin í þeirri umræðu í dag, að það væri ekki nóg þar sem það kostar sannarlega ekki jafn mikið fyrir fólk að standa jöfnum fæti í grunninn. Þessi skilyrðislausa grunnframfærsla getur því aldrei verið algerlega jöfn. Það gerði ég reyndar aðeins að umfjöllunarefni hjá mér í dag, það sem varðar grunnlífeyri. Grunnlífeyrir í kerfinu okkar er skerðanlegur. Það er hægt að skerða grunnlífeyri og það skýtur svolítið skökku við ef kerfið á að vera þannig að það skapi öllum jöfn tækifæri. Algjörlega óháð þeim möguleikum sem fólk hefur til að bæta hag sinn þá er alveg ljóst að einstaklingur sem glímir við fötlun, — ég nefndi dæmi um konu með gervifót, það eru ákveðnir útgjaldaliðir, það er rekstrarkostnaður, það er ákveðinn kostnaður sem fylgir því sem er kannski meiri en ella. Og er ekki eðlilegt að það sé jafnað, ekki bara ef viðkomandi hefur ekki efni á að kaupa sér sokka heldur að það sé ekki þessi upphaflega mismunun?

Mig langaði kannski að fá innlegg hv. þingmanns í þessa umræðu. En ég heyri að við erum í grunninn mjög sammála og ég þakka þingmanninum hlý orð í garð Pírata. Ég er sammála, ég trúi því líka að við setjum fólkið fyrst.